mánudagur, nóvember 26, 2007

Halló Halló

Björk er búin að taka við því starfi að kynda ofninn, hennar verkefni rétt fyrir kvöldmat á hverjum degi. Ingvar Andri fær líka að hjálpa til.
Alltaf saman fjögur og rosa góðir vinir!
Wiiið mjög vinsælt á heimilinu, Gunnar uppáhaldsfrændi lánaði Björk tækið... enda hefur maður ekki mikinn tíma til að leika sér þegar verið er að læra.


Lestrartími fyrir háttinn. Ingvar Andri heimtar þó alltaf að fá að hlusta á Mikka Ref þangað til hann sofnar, finnst hann æðislegur!

Hvernig væri nú að láta vita af sér :)

Ákvað að skella inn smá info á milli tarna.
Ég kláraði 3ja daga heimapróf í síðustu viku og byrja svo á morgun í project vinnu, sem að verður 3 vikna törn og skil 18.des. Ingvar er í svipuðum málum, er reyndar löngu byrjaður á sínu projecti og hefur frest til 21.des.
En við fáum frekar róleg jól í fyrsta skipti síðan við byrjuðum í náminu, við þurfum "bara" að verja þessi project í jan, engin önnur aukapróf. Mikil tilhlökkun til þess að geta slakað á með krökkunum, kannski maður fari eitthvert út fyrir borgina!
Ingvar er reyndar í smá luxus trip núna, skrapp til suður Frakklanda að prufukeyra bíl. Situr örugglega núna að snæðingi á 5 stjörnu veitingastað og gistir í risa herbergi með baðkari!!! ohhhh hvað ég vildi vera hjá honum! Ég læt mér nægja fótabað :-)

Jólahuggið er byrjað á þessu heimili. Við erum búin með nokkrar gjafir, ætlum að reyna að klára flestar og plata Gunnar Bró með þær heim.
Brenndar möndlur er algjört must þegar maður fer í bæinn, skylda hjá krökkunum að heimsækja básinn sem að selur þær ásamt súkkulaði húðuðum ávöxtum og sykurhúðuðum eplum, og lyktin finnst langar leiðir mmmm... maður á eftir að sakna þess!

Svo er hinn vinsæli jólabasar í skólanum og leikskólanum á laugardaginn. Björk mun spila á risa blokkflautu fyrir basarinn í skólakoncert og svo byrjar fjörið með gómgæti og fallegu hlutum sem að börnin hafa verið að gera. Það fara nokkrir hundrað kallar þann dag!

Jæja elskurnar - þangað til næst :-)
H.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra og sjá nokkrar myndir af ykkur. Hér er jólagleðin rétt svo að fara af stað, ekki komnar miklar skreytingar og heldur engin jólasnjór :(. Bara rignir endalaust. Gangi þér vel með verkefnið, hringi í þig bráðum.
Knús,
Steinunn

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól kæru vinir. Jólin verða ekki eins án ykkar, nú vantar að labba yfir í rólegan göngutúr til ykkar og fá sér jólakaffi og fá sér svo hangiket saman á jóladag og ekki má gleyma aðal skemmtun jólana: SPILA !!!!

Jólakveðja til ykkar allra, hlökkum til að hitta ykkur sem allra fyrst

kv. Kári, Kristín, Jakob Ingi, Melkorka María, Victor Kári og Kristófer Tómas