föstudagur, ágúst 10, 2007

styttist í heimför

4 dagar í heimför og mikil tilhlökkun í að komast aftur heim til sín, í húsið sitt, dótið sitt og rúmið sitt! Þessi rúmi mánuður hér á Íslandi búinn að vera fljótur að líða, enda í nógu að snúast alla daga ásamt því að njóta frísins með því að sofa út alla daga, vera boðin í mat og að vera með fjölskyldu og vinum. Ingvar Andri spurði í morgun hjá hverjum við færum að borða í kvöld, honum finnst þessar heimsóknir mjög skemmtilegar, er alveg að fíla að spjalla við fólkið sitt og kynnast því aftur eftir síðasta sumar.

Síðustu dögunum verður eytt í sumarbústað við Meðalfellsvatn með Fríðu og co., etið á sig gat og drukkin eðalvín :) Á sunnudaginn ætlum við að kíkja til Kristínar og Kára, rifja upp gamlar stundir og eyða með þeim einni kvöldstund áður en haldið er út aftur.

Ég komst inn í námið sem að ég sótti um og er mjög spennt og glöð með það. Þetta er mastersnám (Msc) í Information Architecture og ég kemst loksins upp á háskólasvæðið flotta til Ingvars, getum eytt hádeginu þar saman að borða nestið okkar ;)
Ingvar er enn að bíða eftir svari með sitt nám, fær það væntanlega í næstu viku.

H.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til lukku með þetta eskan, þetta er æði
Hlakka til að fá ykkur í næstu viku

kv. Sigrún up stairs

Nafnlaus sagði...

hlakka til að sjá ykkur bráðlega :)