Mikið er nú gott að vera komin heim til sín, í dótið sitt og tala nú ekki um rúmið sitt!
Það voru nú samt blendnar tilfinningar hjá börnunum sem voru alveg til í að vera áfram á Íslandi hjá fjölskyldunni sinni. Björk hefur örugglega verið flutt heim til íslands í huganum því henni fannst hún vera komin eitthvert erlendis þegar við vorum nýkomin heim, var smá ósátt og leið. Hún þarf að takast á við smá breytingar næsta vetur, engin Melkorka og vinkonur í bekknum hennar hafa flutt í annann skóla. En hún finnur örugglega aðra og fleiri vini stelpan, hef ekki miklar áhyggjur af því.
Ingvar Andri var voða kátur að komast í leikskólann sinn fyrsta daginn, en svo kom bakslag annan daginn og ég þurfti að fara frá honum grátandi. Mjög erfitt. En svo hjóluðum við í morgun og ég talaði hann aðeins til og fór frá honum brosandi og glöðum. Hann er svo upprifinn af því að eiga frænda í leikskólanum, sem er nýbyrjaður þar, hann Victor Örn. Hann hefur tekið það að sér að passa upp á hann og aðstoða.
Það er verið að koma sér fyrir aftur, búin að kaupa kaffi og endurnýja innihald ísskápsins. Svo er beðið eftir Ingvari elskunni sem þarf að vinnu viku í viðbót, til að fullkomna fjölskyldulífið hér ved dammen. Það er ekki alveg eins og það á að vera hér án hans...
H.
föstudagur, ágúst 17, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Trúi því sko vel að þér finnist gott að vera komin í þitt eigið rúm!
Gaman að heyra að Ingvar Andri sé að passa upp á frænda sinn og Björk á nú eftir að spjara sig ef ég þekki mína rétt.
Ingvar þinn bauð tengdó í mat í hád. í dag á VOX Bistro ekki amalegt að fara með einum ungum og huggulegum karlmanni út að borða í hádeginu. Hafðu að gott um helgina ein og karlalaus ;(
knús knús mamma
Ég held að Björkin eigi eftir að spjara sig vel, samt örugglega smá erfitt fyrir hana. Allt er að komast í sinn gang hér heima, allir farnir að vinna og sumir í leikskóla en Eiður hangir einn heima bíðandi þess að skólinn byrji, ennþá 4 dagar í það. Ég mun kenna textíl, myndmennt og kristinfræði í vetur, fjölbreytt og skemmtilegt. Vorum að kaupa bókahillur í stofuna, kemur flott út. Þurfum að fara að endurnýja myndasíðuna hjá okkur og setja inn nýjar myndir.
Knús í bili.
Steinunn
Skrifa ummæli