mánudagur, ágúst 20, 2007

Nýtt blogg hjá Björk

Búin að stofna nýtt blogg hjá Björk:
bjarkarblogg.blogspot.com!


Og meilið hennar verður:
bjorkingvarsdottir(at)gmail.com


Björkin

Skólinn byrjaði í morgun hjá Björkinni. Hún vaknaði orðalaust og hress kl 8, klæddi sig og bjó um, læddist svo fram til að fá sér að borða - allt var tilbúið fyrir fyrsta skóladaginn í 5. bekk!
Við Ingvar Andri hjóluðum svo með henni í skólann, sluppum við úrhellið sem vakti mig upp úr sjö.. þvílík demba! Ég næ aldrei að slá grasið út í sumarhúsi því það er alltaf blautt!
Hún var spennt að byrja aftur í skólanum og vaknaði hress stelpan eftir að hafa sofið út í 6 vikur.

Þar sem ég er búin að fá nýja apple fartölvu þá fær Björk til afnota trítluna mína til að æfa sig í að skrifa, lesa og læra inn á heim vefsins. Við förum í það næstu daga að koma henni af stað og virkja meilið, messenger og bloggið. Ég á eftir að stofna blogg fyrir hana, en meilið hennar og messenger er bjorkingvarsdottir@hotmail.com.

Best að drífa sig í bæinn og í leikfimi.. ein og ingvarslaus :(

H.

föstudagur, ágúst 17, 2007

lífið að komast í rútínu

Mikið er nú gott að vera komin heim til sín, í dótið sitt og tala nú ekki um rúmið sitt!
Það voru nú samt blendnar tilfinningar hjá börnunum sem voru alveg til í að vera áfram á Íslandi hjá fjölskyldunni sinni. Björk hefur örugglega verið flutt heim til íslands í huganum því henni fannst hún vera komin eitthvert erlendis þegar við vorum nýkomin heim, var smá ósátt og leið. Hún þarf að takast á við smá breytingar næsta vetur, engin Melkorka og vinkonur í bekknum hennar hafa flutt í annann skóla. En hún finnur örugglega aðra og fleiri vini stelpan, hef ekki miklar áhyggjur af því.

Ingvar Andri var voða kátur að komast í leikskólann sinn fyrsta daginn, en svo kom bakslag annan daginn og ég þurfti að fara frá honum grátandi. Mjög erfitt. En svo hjóluðum við í morgun og ég talaði hann aðeins til og fór frá honum brosandi og glöðum. Hann er svo upprifinn af því að eiga frænda í leikskólanum, sem er nýbyrjaður þar, hann Victor Örn. Hann hefur tekið það að sér að passa upp á hann og aðstoða.

Það er verið að koma sér fyrir aftur, búin að kaupa kaffi og endurnýja innihald ísskápsins. Svo er beðið eftir Ingvari elskunni sem þarf að vinnu viku í viðbót, til að fullkomna fjölskyldulífið hér ved dammen. Það er ekki alveg eins og það á að vera hér án hans...

H.

föstudagur, ágúst 10, 2007

styttist í heimför

4 dagar í heimför og mikil tilhlökkun í að komast aftur heim til sín, í húsið sitt, dótið sitt og rúmið sitt! Þessi rúmi mánuður hér á Íslandi búinn að vera fljótur að líða, enda í nógu að snúast alla daga ásamt því að njóta frísins með því að sofa út alla daga, vera boðin í mat og að vera með fjölskyldu og vinum. Ingvar Andri spurði í morgun hjá hverjum við færum að borða í kvöld, honum finnst þessar heimsóknir mjög skemmtilegar, er alveg að fíla að spjalla við fólkið sitt og kynnast því aftur eftir síðasta sumar.

Síðustu dögunum verður eytt í sumarbústað við Meðalfellsvatn með Fríðu og co., etið á sig gat og drukkin eðalvín :) Á sunnudaginn ætlum við að kíkja til Kristínar og Kára, rifja upp gamlar stundir og eyða með þeim einni kvöldstund áður en haldið er út aftur.

Ég komst inn í námið sem að ég sótti um og er mjög spennt og glöð með það. Þetta er mastersnám (Msc) í Information Architecture og ég kemst loksins upp á háskólasvæðið flotta til Ingvars, getum eytt hádeginu þar saman að borða nestið okkar ;)
Ingvar er enn að bíða eftir svari með sitt nám, fær það væntanlega í næstu viku.

H.