Börnin orðin hundleið á sömu svörunum hjá okkur með að allt verði að bíða þangað til eftir skil, þau eiga orðið inni þó nokkrar sundferðir, strandferðir og ekki sé á minnst tíma frá okkur foreldrunum.
Þau voru nú samt svo ótrúlega heppin að fá í heimsókn ömmu jenný og afa ingva sem að bjóða upp á það sem að foreldrarnir geta ekki gert.
Ég er búin að skrifa mína ritgerð og er byrjuð á yfirlestrinum, hef sex daga í það - er því frekar róleg yfir þessu öllu saman. Ingvar er aftur á móti í smá basli með sína ritgerð, er í fjögurra manna hóp sem er ekki alltaf sammála og á þó nokkuð eftir af ritgerðinni. Hann sést þess vegna ekki mikið heima hjá sér þessa daganna og er orðin langþreyttur eftir veturinn. Hann fær þó smá frí áður en hann fer heim að vinna þar sem hann þarf ekki að verja ritgerðina sína fyrr en 20. júní - við náum þá smá fríi saman fjölskyldan í heita sumrinu sem á að vera hér í sumar, það er spáð heitara sumri en var síðast og það þótti vera heitt!
Feðgarnir að róla sér á rólóvellinum sem er við tjörnina hjá okkur.
Kjút umhverfið hjá okkur.. gæti ekki verið meira næs.
Björk að koma úr víkingaferðinni í víkingaklæðinu og búin að smíða kross.
Ingvar að töffarast með nýju RayBan sólgleraugun - tekur þau varla af sér.. notar þau meira að segja við eldamennskuna :)
Amma og Afi komin!Knus
H.