Það verða bara sett upp sólgleraugun og lesið úti held ég...
H.
Og mamman líka - við pössum í sömu stærð af hjálm, mjög hagkvæmt. en ég þarf að fá mér lokaðan til að fara lengri vegalengdir.
Borðaðar pizzur úti í sólinni á milli leikja.
Fengum rosa flottann sandhól fyrir strákanna sem þeir geta dundað sér í með gröfurnar sínar og vörubílanna.



Ég kláraði eitt verkefni á föstudaginn í valgfagi sem að nefnist rafræn bókasöfn og þjónusta á netinu. Ákváðum ég og Pernilla sem að vann með mér að gera verkefni um þróun rafræns bókasafns og þjónustu þess í heimi Second Life. Mjög skemmtilegt verkefni, sem að endaði með poster session fyrir kennara og nemendur. Myndin sýnir ss. fimm plaköt sem að við gerðum, Ingvar lagði til hjálparhönd með að setja upp designið í InDesign svo að við gætum prentað þetta súper flott út.