mánudagur, mars 26, 2007

Sumarið komið!

Helgin var yndisleg í blíðskaparveðri, sól og ca. 13 stiga hita.
Við héldum upp á afmælið hans Ingvars Andra á laugardeginum, hann bauð 7 vinum sínum í grill og vörubílaköku. Hann var rosa glaður með daginn og var alveg ti í að gera þetta aftur daginn eftir.

Maður verður nú að gorta sig smá. Sýna henni mömmu að ég hafi ekki verið að plata hana :)
Við sátum úti allan eftirmiðdaginn, garðurinn var skjólgóður og er vel afgirtur - við erum með algjört næði. Við náðum í restina af garðhúsgögnunum, þurfum að bera olíu á þau og gera þau falleg fyrir sumarið.
Sannir íslendingar - ákveðið var að grilla og borða úti.

Börnin voru svooo þreytt eftir daginn, enda búin að leika sér báða daganna allan daginn úti plús að halda upp á eitt afmæli. Ingvar Andri sofnaði í sófanum um sex leytið - þurfti bara aðeins að loka augunum. Björkin lék við Melkorku alla helgina, gisti hjá henni og borðaði grillmat í flest öll mál. Við báðum hana um að fara í náttfötin sín rétt fyrir átta og taka sængina úr pokanum, hlupum svo í lærdómin á meðan... eftir 20 mín ýttum við á hana að drífa sig en fengum ekkert svar. komum svo að henni þar sem hún lá steinsofandi þessi elska.

Smá áminning: það er kominn tveggja tíma munur!
Og við erum komin með nýtt íslenskt símanúmer! Nú geta þeir sem að eru með íslenskan síma hringt í okkur á venjulegum heimilissíma taksta... þarf ekki að kaupa heimsfrelsi eða veigra sig við að hringja vegna kostnaðar, og sama hjá okkur. Við hringjum númerið til ykkar næstu daga :)


Knus úr blíðunni
H.

fimmtudagur, mars 22, 2007

Kóngur dagsins!

Það er mikið gert úr afmælisdegi barnanna á leikskólanum. Hann mætir að sjálfsögðu með kökur fyrir alla, svo er smá athöfn þar sem hann fær kórónu og litla fallega gjöf, sem var prjónuð kisa. Svo er sögð saga eða ævintýri með atburðum úr lífi hans.


Kominn heim og sestur niður með pabba (of course!) að setja saman playmo kastalann.
Og nú er bara að fara að leika sér!!!

Takk fyrir strákinn allir :)

Knus
H.

4 ára gutti!

Nú er maður loksins orðinn 4ja ára, lengi búið að bíða eftir því!
Vaknaði ekstra snemma í morgunn (kl 06.00)!! og spurði hvort hann mætti opna pakkanna þá. Foreldrarnir héldu nú ekki, vildu fá að sofa aaaðeins lengur, litli maðurinn beið rólegur í rúman hálftíma og svo var farið á fætur vel fyrir sjö og byrjað á pakkaflóðinu... og ekkert smá mikið af pökkum eins og sést á myndum.

Fyrsti pakkinn frá mömmu og pabba, fleiri bruder bílar..

Svo var einn laaangur og stór pakki frá Tómasi Loga og Eið, rosa flottur traktor sem að Ingvar Andri er búinn að horfa lengi á í búðinni og svo uppi á skáp...

Mótorhjól og bíll frá Gunnari Inga - að sjálfsögðu var það tekið með í leikskólann!

Og svo frá Ömmu Ásu, afa og Ásdísi Latabæjar þættir.. MJÖG glaður með það! Nú þurfum við ekki að eltast við þættina í sjónvarpinu sem eru sýnir eldsnemma um helgar.

fimmtudagur, mars 08, 2007

vorboðin

Nú gægist sólin loksins undan skýjunum sem að hafa gnægt yfir okkur síðustu daga/vikur og allt í einu hýrnar yfir manni, verður orkumeiri og tilhlökkun til sumars færist yfir mann. Loksins!
Litlu fuglarnir birtast og endurnar á tjörninni geta synt á klakalausri tjörn.
En það er allt á floti eftir rigningu og snjó síðustu vikur, myndarlegir pollar út um allt þar sem jörðin er orðin gegnsósa af vatni.

Törnin er byrjuð hjá okkur, dagarnir og vikurnar hverfa og styttist óðum í skiladag ritgerðar, sem er reyndar ekki fyrr en í enda mai... en tími sem að okkur finnst vera knappur og verður hver einasti dagur fram að skiladegi nýttur.
Ég er enn að vinna í vandamálaspurningunni minn ásamt öðru verkefni sem ég á að skila 22 mars og Ingvar er komin af stað með sína ritgerð, auðveldara að halda aga þegar maður er í hópavinnu.

Best að nýta tímann :)

H.

fimmtudagur, mars 01, 2007

og það snjóaði og snjóaði...

Þetta er ekki lítið af snjó, kannski ekki skrýtið að samgöngur hafi lamast, en fallegur er hann, allt hvítt og snjóhrímaðar rúður - voða kósý.

Ingvar að tékka á mjódódóinu sínu og auðvitað að sýna Steinunni og jobba :)

Björkin sæta með eplarauðar kinnar eftir að hafa verið úti í snjónum allan daginn, kom inn með snjóinn með sér fastann í hárinu.


Hann Ingvar Andri var ekki alveg að fíla snjófokið, finnst ekkert gaman að fá framan í sig snjóinn og kom inn eftir hálftíma! Fór aftur út daginn eftir og var mikið lengur þar sem farið var að hlýna aðeins og ekkert rok sem var að angra hann :)

Ingvar á leið út í búð labbandi klæddur útivistargírnum sínum með 60 lítra bakpoka sem hann fyllti af veigum fyrir gestina sem áttu að koma um kvöldið en komu svo ekki.

Það var svo gaman úti að renna sér í sköflunum að maður gleymdi sér bara og var orðinn pirraðir og svangur.. því var reddað með boosti sem var matreiddur úti.

Björk búin að vera úti ALLAN daginn að búa til "hulle" holu í skafl hjá Melkorku, holan endaði í 3ja herbergja rými þar sem þær gátu setið. Vettlingarnir sem amma Día sendi urðu vel stórir eftir snjóinn sem vildi festast á .

Útí bústað, ákváðum að tékka á húsinu eftir óveðrið.. sem betur fer!

Holan hennar Bjarkar, Melkorku og Jakobs.

Og svo mynd af verðandi hjónum á leið heim, vonandi sæl eftir atburðaríka ferð til álaborgar!

H.