Greyjin Steinunn og Jobbi þurftu að eyða 7 tímum í lestinni í gær, voru komin til álaborgar um tvö leytið. Og ekki tók betra við, það beið enginn leigubíll, lestarstöðinni var lokað og fólkið sem að kom með lestinni stóð fyrir utan ráðalaust.
Leigubílarnir voru víst hættir að keyra seint í gærkvöldi, semsagt enginn strætó, enginn leigubíll og við gátum ekki sótt þau... nú vantar hjálparsveitina okkar góðu!
Sem betur fer gátu þau arkað yfir snjóskaflanna á hótelið á móti lestarstöðinni ásamt hinum og bókað herbergi fyrir nóttina!
Veit ekki hvernig samgöngur verða í dag, það sitja víst falck bílar og snjóplógar fastir og ekki miklar líkur á að göturnar verða ruddar allar í dag. Fólk kemst ekki til vinnu sinnar, allt í lamasessi vegna snjóstormar.. ótrúlegt! eitthvað sem að þekkist ekki heima, allavega ekki í svona langan tíma.
Erfitt að vita af þeim niðrí bæ, svo stutt frá og geta ekki sótt þau!
H.
fimmtudagur, febrúar 22, 2007
miðvikudagur, febrúar 21, 2007
Ófærð
Hér snjóar út í eitt og verður víst áfram fram á nótt og næstu daga.
Öllu flugi aflýst í dag til Álaborgar og óvíst með morgundaginn, Steinunn og Jobbu þurfa að taka lestina til okkar og verða komin um miðnætti í kvöld.. geta örugglega huggað sig í lestinni þar sem hægt er að versla sér snarl og öl.
Við lögðum af stað á bílnum sem er á sumardekkjum út í búð áðan og ákváðum að snúa við þegar við vorum hálfnuð, komumst sem betur fer á honum heilum til baka - illa skafaðar götur, bílar fastir út í köntum og strætó þver yfir götuna.. ekki skynsamlegt, sérstaklega þar sem bíllinn spólar út í eitt og leitar í alla kanta. Festum okkur ekki sem betur fer.
Ingvar ákvað því að labba út í búð í sínum skeljungsbúðarútivistarfatnaði með 65 lítra bakpoka, og var að koma með hann fullann af mat og öli fyrir gestina sem að koma seint í kvöld.
óð snjóinn upp að hnjám á leiðinni í búðina og á leiðinni til baka voru sumir skaflarnir komnir í mittishæð - og það heldur áfram að snjóa! Ekki verður farið mikið á næstu dögum.. reyndar er búið að aflýsa einhverjum tímum uppí háskóla.
Vona bara að lestinn haldi sinni tímaáætlun - búið að aflýsa frá álaborg til frederikshavn..

Vor í Berlín og Snjór í Álaborg

Nú snjóar og snjóar, snjórinn loksins kominn sem hefði átt að vera hér um jólin.
Börnin búin að fara út og sleðast aðeins, en litli maðurinn entist ekki lengi.. honum finnst ekki gaman að vera kalt á höndum og í framan, kom inn eftir hálftíma!
Held að það eigi að snjóa alla vikuna, vonandi verður þetta síðasta snjóhretið fyrir vorið -
við fengum nefnilega smá vorfíling í Berlín um helgina.
Sól, 8 stiga hiti og rölt í borginni á milli markaða og kaffistaða - algjört æði!
Fórum á geðveikan matarmarkað á laugardaginn og versluðum við þar í dýrindis matarveislu með þrenns konar skinku, ólífubrauði og geggjuðum ostum.. þvílíkt góðgæti.
Við lögðum reyndar bílnum okkar á föstudagskvöldinu við götuna þar sem markaðurinn var á laugardeginum og var hann dreginn í burtu á einhvern geymslustað í borginni - sem betur fer höfðum við Elínu þýskumælandi til að finna bílinn og redda málunum fyrir okkur.
Ólöglegheitin kostuðu okkur 120 evrur..
Við erum endurnærð eftir berlínarferðina þótt að hún hefði verið stutt - við förum fljótlega aftur og verðum þá aðeins lengur, enda veitir ekki af nokkrum dögum í svona stórborg.
En takk fyrir okkur Elín og Darri fyrir frábæra helgi!
Steinunn syss og jobbi koma svo í kvöld til okkar í heimsókn og verða fram á sunnudag. Fá því miður snjó allan tímann, en við getum nú örugglega nýtt okkur inniveruna í huggulegheitum.
Ingvar mótorhjólatöffari, ískalt en sæll eftir einn búðartúr.
Hann verður að bíða í rúma viku eftir næsta túr...

Ingvar Andri fékk bugga biggi handklæði frá ömmu jenný og notar það sem teppi, finnst það voða smart. Dundar sér í veikindunum við að raða bílunum í röð eftir týpu og gerð - já.. hvaðan hefur hann þetta drengurinn. Börnin sáu ekkert annað en bíla í berlín, bentu á ALLA mini bíla og bmw sem þau sáu ásamt öðrum áhugaverðum bílum.. áhuginn hjá pabbanum er smitandi!
Knus
H.
mánudagur, febrúar 12, 2007
pestinni að ljúka
... vonandi, þetta er komið nóg - sit enn heim með tvo krakka sem eru snýtandi sér allan daginn og hundfúl yfir því að komast ekki út í snjóinn.
Ingvar Andri var meira og minna með hita alla síðustu viku, rauk alltaf upp í hita á kvöldin og eyddi svo nóttinni í hóstaköstum. Hefur verið það slappur að hann hefur þurft að leggja sig seinni partinn og sofið í 2 - 3 tíma.. eða sofnað fyrir sjö á kvöldin. Hefur verið pirraður og ekki með sjálfum sér eftir þessa veikindaviku. Hann fer í leikskólann á morgun og vonandi kætist hann við það.. kemst í rútínuna aftur.
Björk er búin að vera heima síðan á fimmtudag með kvef og hefur kvartað aðeins yfir eyrnaverkjum. Hún var svo stífluð í gær að við ákváðum að halda henni heima einn dag í viðbót.
Svo hef ég líka nælt mér í pestina og verið hundslöpp síðustu daga, hnerrandi út í eitt og horuð.
En við verðum vonandi laus við horið fyrir næstu helgi, því þá ætlum við að heimsækja hana Elínu til Berlínar!! Hlakkar öllum mikið mikið til. Krakkarnir fara í vetrarfrí í næstu viku en það verður einhver tímasókn hjá okkur. Það verður gott að komast aðeins úr sveitinni, fá smá tilbreytingu og upplyftingu á miðjum vetri.
Svo fáum við heimsókn frá Steinunni syss og Jobba í vetrarfríinu. Þau eru að koma í fyrsta skipti til okkar og við getum örugglega huggað okkur eitthvað með þeim. Sýnum þeim sæta bæinn okkar.. held þó að allar útsölur verði búnar :) förum bara á kaffihús í staðinn.

miðvikudagur, febrúar 07, 2007
örið skelfilega
þriðjudagur, febrúar 06, 2007
Veikur lítill maður og Glaður stór maður
Ingvar Andri svaf í allan gærdag með yfir 40 stiga hita. Ég spurði hann hvort að honum væri heitt, þá svaraði hann "ég vil ekki vera heitt", hundfúll með þetta - leiðinlegt að vera veikur fyrir svona lítinn pjakk.

Ingvar mættur á svæðið á nýjasta faratækinu, bmw r100 rs ´94, glaður eftir langan túr frá Middelfart. Himinglaður að vera loksins kominn með hjólið heim! Náði hinsvegar ekki að keyra í dag því hér er farið að kólna, frost á næturnar og snjóaði aðeins í dag. Held að hann sé nú samt sáttur að geta bara horft á það og starta því... vantar bara skúrinn til að ditta að því og pússa :)
Við förum svo aftur til Farsö á morgun, losna við gipsið og saumarnir verða teknir. Kvíði mest fyrir þegar þessi plástur verður tekinn/rifinn af, það er eins og hann sé straujaður á mig.. og vona að ég fái ekki ljótt ör.
Get farið að keyra sjálf - er búin að hafa nokkra einkabílstjóra síðustu vikur.
Get byrjað á skokkinu aftur.
Get notað gaffal og hníf - þarf ekki lengur að skera ofan í mig matinn :)
Byrja svo á að gera æfingar með hendina sem er frekar stirð eftir þrjár vikur í gipsi.
jæja nóg í bili, ætla að skólast aðeins.
Knus
H.

Ingvar mættur á svæðið á nýjasta faratækinu, bmw r100 rs ´94, glaður eftir langan túr frá Middelfart. Himinglaður að vera loksins kominn með hjólið heim! Náði hinsvegar ekki að keyra í dag því hér er farið að kólna, frost á næturnar og snjóaði aðeins í dag. Held að hann sé nú samt sáttur að geta bara horft á það og starta því... vantar bara skúrinn til að ditta að því og pússa :)Við förum svo aftur til Farsö á morgun, losna við gipsið og saumarnir verða teknir. Kvíði mest fyrir þegar þessi plástur verður tekinn/rifinn af, það er eins og hann sé straujaður á mig.. og vona að ég fái ekki ljótt ör.
Get farið að keyra sjálf - er búin að hafa nokkra einkabílstjóra síðustu vikur.
Get byrjað á skokkinu aftur.
Get notað gaffal og hníf - þarf ekki lengur að skera ofan í mig matinn :)
Byrja svo á að gera æfingar með hendina sem er frekar stirð eftir þrjár vikur í gipsi.
jæja nóg í bili, ætla að skólast aðeins.
Knus
H.
Síðasta vika
Vinkonurnar Melkorka og Björk að dunda sér saman. Kaninan Plet fékk að koma í helgarheimsókn þar sem Björk mátti koma með gæludýrið sitt í skólann á mánudeginum.. mjög spennandi.
Vinirnir sem plottuðu uppsögnina sína hjá Skeljungi saman fyrir 3 árum. Fengum Hjört og Karenu óléttu í heimsókn þarsíðustu helgi.
Kristján Elí og Ingvar Andri.
Stórkaup síðustu viku... við ákváðum að fjárfesta í Kitchen Aid blender. Nú er boostað út í eitt og Björk fékk að gera fyrsta boostið handa okkur, mjög kát með þetta, kunni þetta alveg frá því hún var hjá ömmu Ásu og Ásdísi síðasta sumar :)Hann er allavega mikið notaður og búið að vera gaman að þróa drykkina.

Knus
H.
mánudagur, febrúar 05, 2007
Vorönn
Allt komið af stað aftur.
Skólinn byrjaður, endaspretturinn.. 6. önn.. loksins farið að sjást í ba gráðuna.. útskriftina langþráðu. Önnin verður spennandi með skemmtilegum valfögum og ba ritgerð.
Ég losna svo við gipsið á miðvikudaginn og fæ að sjá skurðinn dularfulla. Hef ekki hugmynd um hvernig hann lítur út eða hvað hann er stór, vona bara að ég fái ekki sjokk þegar plásturinn verður rifinn af...
Litli maðurinn er búinn að vera veikur af og til þessa vikuna, með hita, smá eyrnaverk og núna illt í hálsinum. Það er búið að vera pest tími hjá öllum litlu strákunum hér ved dammen, allir náð sér í hita og hósta.
Og atburður dagsins..... Ingvar fær loksins loksins mótorhjólið sitt í dag. Er lagður af stað til óðinsvéa að sækja gripinn og kemur örugglega ískaldur á öllum útlimum í dag með frosið bros á vörum þar sem það er bara 5 stiga hiti en sól og fallegt veður. Það er nefnilega von á snjó og slyddu í vikunni og ekki hægt að sækja hjólið í slíku veðri.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)