miðvikudagur, janúar 31, 2007
...hann á afmæli hann gunnar Ingi
Nú er litli bróðir óðum að nálgast stóru systur sína í aldri, eða mér finnst það allavega.. aldursbilið minnkar eftir því sem að maður eldist, honum finnst ég kannski vera hundgömul :)
Guttinn er nefnilega 23 ára í dag!
Til hamingju með afmælið Gunnar Ingi!!
Knús og kossar frá okkur í álaborginni.
H.
ps. eruð þið byrjuð að skoða nám í dk ??
þriðjudagur, janúar 23, 2007
fyrsti snjórinn

Ákvað að setja inn mynd af kryddjurtunum sem eru að taka við sér í vorveðrinu í janúar. Við getum ennþá gengið að fersku rósmarín, oregano og timian...
Loksin loksins kom snjórinn og auðvitað nýttum við okkur það og sóttum börnin fyrr í skólann og fengum okkur smá göngutúr í hverfinu í yndislegu veðri.
Við fáum að hafa snjóinn í nokkra daga, byrjar að rigna og hvessa á fimmtudaginn. Spurning hvort það snjói aftur... lítur ekki út fyrir það.Knus
H.
janúarmyndir
Björk byrjaði nýárið að þrífa flotta hjólið sitt í góða veðrinu.
Kristín í einu af okkar nauðsynlegu kaffispjalli í próflestri.
Upprennandi kokkur, vill ólmur vera með í eldamennskunni og fá að sjá hvað verið er að kokka á heimilinu.
Ingvar Andri elskar vörubílinn sinn!
Já!! sönnunin á nýja hobbíinu hans Ingvars :)Honum leiðist aldrei...
Knus
H.
komin vika!
Er öll að koma til eftir aðgerðina, minni beinverkir og verkjatöfluskammturinn er komin niður í 1/3. En þetta er ekki það skemmtilegasta í heimi að vera einhent! Geri eins mikið og ég get heima með hægri hendinni - get sett í vél og í þurrkarann, en ekki hengt upp - er farin að geta klætt mig í og úr ein :) - gert smá tiltekt - úff hvað það er erfitt að vera svona fatlaður...
Fór með Ingvari í búðina í gær og reyndi að kaupa matvörur sem að ég þyrfti ekki hjálp við þegar ég fengi mér að borða, eins og skorið brauð og sneiddan ost.
Máttinn í vinstri hendina fæ ég vonandi fljótlega, fæ verk inn í bein þegar ég reyni að nota hana eða þegar ég sný hendinni óvart. Ég reyni að hlífa henni á meðan gifsið er og svo get ég byrjað að liðka hana og æfa þegar ég losna við það.
Kvíði samt í næstu viku þegar Ingvar þarf að fara til portúgals í reynsluakstur og verður í tvær nætur!! og ég get ekki keyrt bílinn.. veit ekki hvað ég geri, kannski maður blikki nágrannanna aftur ;)
Annars er alveg yndislegt veður hérna núna - Loksins kominn smá snjór og er heiðskírt og sól. Við ætlum að sækja krakkanna snemma í dag, draga fram sleðann og fá okkur göngutúr . Snjórinn endist ekki lengi, held að það byrji að hitna aftur á fimmtudaginn með rigningu og roki.
Loksins er Ingvar að klára próftörnina sína á morgun!! hann er búinn að vera í prófum síðan í enda nóvember, er orðinn mjög leiður og frústreraður á þessum próflestri. Hann getur glatt sig með mótorhjólakaupum í enda vikunnar. Já hvað getur maður gert!? hann vinnur víst fyrir þessu og meira en það, ég get ekki haldið aftur af honum mikið lengur... hef þó gert það í þó nokkurn tíma, þið vitið hvað hann getur verið erfiður þessi elska.
Hann er orðinn stór strákur og á þetta alveg skilið :)
Svo fáum við gest á morgun, eldeldgamlan vin Ingvars hann Gísla. Hann ætlar að vera hjá okkur yfir eina nótt... verður eflaust mikið spjallað um bíla, vín og úr.

miðvikudagur, janúar 17, 2007
með "einari"
Færslan mín í dag verður slegin inn með annarri hendinni eða með "einari" eins og Björk sagði oft þegar hún var lítil.
Ég var svo óheppin í gær að brjóta á mér vinstri hendina.
Ákváðum að skreppa í bæinn fjölskyldan eftir prófið hjá mér í gær, sem mér gekk bara vel í :)
Svo þurftum ég og Ingvar Andri að fara i musikalsk legestue og Ingvar og Björk ætluðu að versla eitthvað gott í salling og fara svo heim. Á leiðinni náði ég að flækja skóinn í annarri buxnaskálminni og féll svo kylliflöt á vinstri hendina sem ég bar fyrir mig í fallinu, dró litla manninn með mér og lenti hann líka kylliflatur - alveg ótrúlegt fall.
Ég náði að hringja í Ingvar þar sem hann var skammt frá og kom hann hlaupandi til okkar og ég beint á slysó með mikinn verk í hendinni og Ingvar Andri sem betur fer ómeiddur.
Teknar voru nokkrar röntgen myndir og ég send niður aftur. Brotið er ekki gott og vildi læknirinn láta sérfræðing í olnboga og handleggjum skoða þær betur og hann kæmi ekki fyrr en morguninn eftir. Ég var send heim með handlegginn i gipsi og svo yrði hringt í mig eftir fundinn.
Fékk þær slæmu of leiðinlegu fréttir áðan að það hefði flísast úr spolebenshoved - er ekki viss með hvaða bein það er eða hvort þetta sé rétt orðað hjá mér, en beinið liggur í framhandleggnum og þetta þýðir AÐGERÐ á föstudaginn til Farsø! Ekki gaman!
Hef aldrei áður lent í öðru eins - hef ADREI farið á slysó á ævinni!!!
Er enn að átta mig á þessu...
Læknirinn sagði að það væru líkur á að handleggurinn mundi ekki verða eins og hann var áður, gæti verið erfitt að rétta úr honum. Vona að það sé það sem að gerist í versta falli.
Allavega - aðgerð á föstudaginn til Farsø, svæfð og skorin, og væntanlega í gipsi í 3 vikur.
Nú vantar fjölskylduna hingað - Björk sagði áðan, "hver á þá að vera með okkur?"
Sem betur fer eigum við góða vinafjölskyldu hér sem getur hjálpað okkur, við nýtum okkur hjálpina frá þeim á meðan.

mánudagur, janúar 15, 2007
Heimþrá
Björk fékk vott af heimþrá í gær, gerist reyndar reglulega hjá henni.
Þegar hún talar við einhvern úr fjölskyldunni frá Íslandi þá á hún það til þessi elska að fara að gráta eftir að hún réttir okkur símtólið. Henni þykir svo ofurvænt um fólkið sitt heima og saknar þeirra mikið og þegar hún heyrir í þeim brýst út löngunin til að fara heim og sjá alla.. og þá renna tárin.
Hún spjallaði aðeins við Fríðu frænku sína í gær, sem að hringdi vegna bílamála.
Þau þurfa að versla sér nýjan bíl þar sem að þeirra bíll skemmdist í slæmum árekstri á keflavíkurveginum á föstudaginn. Sem betur fer eru Elín og Hansi heil á húfi, eru þó nokkuð lemstruð eftir þetta þar sem þetta var frekar harður árekstur.
Þegar það kemur eitthvað upp á hjá fjölskyldu og vinum er erfitt að vera langt í burtu og á þeim tímapunktum er heimþráin mikil.
Prófið loksins hjá mér á morgun! Þarf að verja ritgerðina mína og er í fyrsta skipti ekki með hnút í maganum. Hlakkar eiginlega bara til að fara í prófið og fá einkun fyrir verkefnið hjá mér. Er búin að lesa og glósa allt lesefnið sem ég valdi mér til prófs og er núna að undirbúa nokkra punkta fyrir morgundaginn - þannig að ég er bara nokkuð vel undirbúin og líður vel með þetta verkefni.
Ingvar er greinilega að njóta þess að vera í fríi, liggur sofandi við hliðina á mér og klukkan orðin hálfellefu!! Hann tók eitt spil með Kára í gær og voru þeir að til klukkan eitt.
Sendið mér góða strauma á morgun!

föstudagur, janúar 12, 2007
Janúar...
er próflestrarmánuður hjá okkur núna þriðja árið í röð og verður það einnig næstu tvö ár!
Ekki skemmtilegasti tíminn en án efa sá árangursríkasti.
Þessi tími verður reyndar skemmtilegri með árunum, þar sem við erum að taka próf úr þeim valfögum sem við höfum valið okkur, sem er frábrugðið því að taka próf úr skyldufögunum.
Valfag haustannar hjá mér er Hönnun og mat á upplýsingakerfum eða Design og evaluering af Informationssystemer. Í verkefninu tek ég fyrir netsíðu bókasafnanna á Íslandi www.gegnir.is, þar sem ég met hana útfrá ákveðnum aðferðum og skilyrðum til að finna út hvort hægt sé að betrumbæta hana með áherslu á enduhönnun þeirra atriða sem að eru til staðar og benda á önnur þjónustuatriði sem hægt er innvæða á netsíðuna... mjög skemmtilegt verkefni sem
ég get vonandi unnið áfram með í ba ritgerðina mína.
Ingvar hefur reyndar verið í löngum og ströngum próflestri sem byrjaði í enda nóvember og klára hann ekki fyrr en 24. janúar! Er búinn að taka 5 próf með góðum árangri og á eitt eftir.
Börnin okkar eru hraust og sæl og hafa nóg fyrir stafni í sínu á meðan foreldrarnir eru að læra.
Ingvari Andra er boðið heim til hans Christophers sem er með honum í leikskólanum í 4ja ára afmæli á morgun foreldralaus í rúma 4 tíma, vona að það gangi vel.
Hugsið vel um ykkur!
Knus
Hildur
Nokkrar myndir með (geri allt fyrir hana Rúnu mína)
Björk fór að skauta á skautasvellinu flotta - datt bara einu sinni, var fljót að ná tökum á þessu þrátt fyrir að liðið hafi ár síðan hún fór síðast.

Björk og kanínan hennar Plet sem hún hugsar um í Byggeren, sem er frístundaheimilið sem hún fer í eftir skólann.

fimmtudagur, janúar 11, 2007
Jóla og áramótamyndir
Jólamaturinn - Krakkarnir fengu að narta í sitthvort kalkúnalærið, fannst það æði.

Ingvar Andri fékk að stóran vörubíl og tvær gröfur, planið er að fá stórann sandkassa fyrir strákanna í húsinu með vorinu svo þeir geti farið í gröfuleik úti.

Björk fékk æðislega vor og sumarkápu í jólagjöf frá okkur

Og já! er byrjuð að skokka á nýju ári - ein mynd til að sanna það :)

Ingvar Andri var rosa flottur sjóræningi í gamlárspartýinu

Spjallað í sófanum hjá Sigrúnu á gamlárskvöld

Smá flugeldashow garðinum hjá okkur

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)