mánudagur, nóvember 26, 2007

Halló Halló

Björk er búin að taka við því starfi að kynda ofninn, hennar verkefni rétt fyrir kvöldmat á hverjum degi. Ingvar Andri fær líka að hjálpa til.
Alltaf saman fjögur og rosa góðir vinir!
Wiiið mjög vinsælt á heimilinu, Gunnar uppáhaldsfrændi lánaði Björk tækið... enda hefur maður ekki mikinn tíma til að leika sér þegar verið er að læra.


Lestrartími fyrir háttinn. Ingvar Andri heimtar þó alltaf að fá að hlusta á Mikka Ref þangað til hann sofnar, finnst hann æðislegur!

Hvernig væri nú að láta vita af sér :)

Ákvað að skella inn smá info á milli tarna.
Ég kláraði 3ja daga heimapróf í síðustu viku og byrja svo á morgun í project vinnu, sem að verður 3 vikna törn og skil 18.des. Ingvar er í svipuðum málum, er reyndar löngu byrjaður á sínu projecti og hefur frest til 21.des.
En við fáum frekar róleg jól í fyrsta skipti síðan við byrjuðum í náminu, við þurfum "bara" að verja þessi project í jan, engin önnur aukapróf. Mikil tilhlökkun til þess að geta slakað á með krökkunum, kannski maður fari eitthvert út fyrir borgina!
Ingvar er reyndar í smá luxus trip núna, skrapp til suður Frakklanda að prufukeyra bíl. Situr örugglega núna að snæðingi á 5 stjörnu veitingastað og gistir í risa herbergi með baðkari!!! ohhhh hvað ég vildi vera hjá honum! Ég læt mér nægja fótabað :-)

Jólahuggið er byrjað á þessu heimili. Við erum búin með nokkrar gjafir, ætlum að reyna að klára flestar og plata Gunnar Bró með þær heim.
Brenndar möndlur er algjört must þegar maður fer í bæinn, skylda hjá krökkunum að heimsækja básinn sem að selur þær ásamt súkkulaði húðuðum ávöxtum og sykurhúðuðum eplum, og lyktin finnst langar leiðir mmmm... maður á eftir að sakna þess!

Svo er hinn vinsæli jólabasar í skólanum og leikskólanum á laugardaginn. Björk mun spila á risa blokkflautu fyrir basarinn í skólakoncert og svo byrjar fjörið með gómgæti og fallegu hlutum sem að börnin hafa verið að gera. Það fara nokkrir hundrað kallar þann dag!

Jæja elskurnar - þangað til næst :-)
H.

miðvikudagur, október 31, 2007

hlaut að koma að því...

fann eitt grátt hár í morgun!
Svosem lítið hægt að gera í því annað en að reyna að slaka á og njóta lífins :)

/hildur

mánudagur, september 24, 2007

síðsumars myndir

Við náðum að hitta Kristínu og Kára og sjá nýja heimilið á vellinum, og auðvitað var tekið eitt spil með spjallinu.

Síðasta kaffiboðið hjá ömmu Jenný í bili -



Við Björk settum niður nokkur sólblómafræ í sumar, og þau tóku svo á móti okkur þegar við komum heim i ágúst.

aðeins fleiri myndir


smá klór hjá Hansa...
Frændurnir flottu í húsdýragarðinum

morgnarnir í bæjartúninu, mogginn að sjálfsögðu skoðaður


Gott að vera hjá ömmu og afa í bæjartúninu!

Nokkrar myndir frá sumrinu

Ákvað að sýna lit og setja inn nokkrar myndir :)

Huggó afmælisdagur mömmu/ömmu Ásu upp í bústað.

Á leið niður að Meðalfellsvatni að reyna við veiðar með Fríðu og Hansa.

mánudagur, ágúst 20, 2007

Nýtt blogg hjá Björk

Búin að stofna nýtt blogg hjá Björk:
bjarkarblogg.blogspot.com!


Og meilið hennar verður:
bjorkingvarsdottir(at)gmail.com


Björkin

Skólinn byrjaði í morgun hjá Björkinni. Hún vaknaði orðalaust og hress kl 8, klæddi sig og bjó um, læddist svo fram til að fá sér að borða - allt var tilbúið fyrir fyrsta skóladaginn í 5. bekk!
Við Ingvar Andri hjóluðum svo með henni í skólann, sluppum við úrhellið sem vakti mig upp úr sjö.. þvílík demba! Ég næ aldrei að slá grasið út í sumarhúsi því það er alltaf blautt!
Hún var spennt að byrja aftur í skólanum og vaknaði hress stelpan eftir að hafa sofið út í 6 vikur.

Þar sem ég er búin að fá nýja apple fartölvu þá fær Björk til afnota trítluna mína til að æfa sig í að skrifa, lesa og læra inn á heim vefsins. Við förum í það næstu daga að koma henni af stað og virkja meilið, messenger og bloggið. Ég á eftir að stofna blogg fyrir hana, en meilið hennar og messenger er bjorkingvarsdottir@hotmail.com.

Best að drífa sig í bæinn og í leikfimi.. ein og ingvarslaus :(

H.

föstudagur, ágúst 17, 2007

lífið að komast í rútínu

Mikið er nú gott að vera komin heim til sín, í dótið sitt og tala nú ekki um rúmið sitt!
Það voru nú samt blendnar tilfinningar hjá börnunum sem voru alveg til í að vera áfram á Íslandi hjá fjölskyldunni sinni. Björk hefur örugglega verið flutt heim til íslands í huganum því henni fannst hún vera komin eitthvert erlendis þegar við vorum nýkomin heim, var smá ósátt og leið. Hún þarf að takast á við smá breytingar næsta vetur, engin Melkorka og vinkonur í bekknum hennar hafa flutt í annann skóla. En hún finnur örugglega aðra og fleiri vini stelpan, hef ekki miklar áhyggjur af því.

Ingvar Andri var voða kátur að komast í leikskólann sinn fyrsta daginn, en svo kom bakslag annan daginn og ég þurfti að fara frá honum grátandi. Mjög erfitt. En svo hjóluðum við í morgun og ég talaði hann aðeins til og fór frá honum brosandi og glöðum. Hann er svo upprifinn af því að eiga frænda í leikskólanum, sem er nýbyrjaður þar, hann Victor Örn. Hann hefur tekið það að sér að passa upp á hann og aðstoða.

Það er verið að koma sér fyrir aftur, búin að kaupa kaffi og endurnýja innihald ísskápsins. Svo er beðið eftir Ingvari elskunni sem þarf að vinnu viku í viðbót, til að fullkomna fjölskyldulífið hér ved dammen. Það er ekki alveg eins og það á að vera hér án hans...

H.

föstudagur, ágúst 10, 2007

styttist í heimför

4 dagar í heimför og mikil tilhlökkun í að komast aftur heim til sín, í húsið sitt, dótið sitt og rúmið sitt! Þessi rúmi mánuður hér á Íslandi búinn að vera fljótur að líða, enda í nógu að snúast alla daga ásamt því að njóta frísins með því að sofa út alla daga, vera boðin í mat og að vera með fjölskyldu og vinum. Ingvar Andri spurði í morgun hjá hverjum við færum að borða í kvöld, honum finnst þessar heimsóknir mjög skemmtilegar, er alveg að fíla að spjalla við fólkið sitt og kynnast því aftur eftir síðasta sumar.

Síðustu dögunum verður eytt í sumarbústað við Meðalfellsvatn með Fríðu og co., etið á sig gat og drukkin eðalvín :) Á sunnudaginn ætlum við að kíkja til Kristínar og Kára, rifja upp gamlar stundir og eyða með þeim einni kvöldstund áður en haldið er út aftur.

Ég komst inn í námið sem að ég sótti um og er mjög spennt og glöð með það. Þetta er mastersnám (Msc) í Information Architecture og ég kemst loksins upp á háskólasvæðið flotta til Ingvars, getum eytt hádeginu þar saman að borða nestið okkar ;)
Ingvar er enn að bíða eftir svari með sitt nám, fær það væntanlega í næstu viku.

H.

þriðjudagur, júní 26, 2007

Stórborgarferð til Köben

Amma Ása bauð okkur til köben í smá túristaferð, það var farið í tivoli og skoðað það athyglisverðasta. Æðisleg ferð og rosa gott að komast aðeins að heiman.
Við tókum svo ömmu Ásu og Ásdísi frænku með til álaborgar og ætlum að hafa þær hjá okkur í viku.

Það var farið í lestina, bussen og þotuna.. mikil spenna hjá litla manninum!






Fríið


skálað fyrir bachelorunum... í kampavíni að sjálfsögðu!


Jæja loksins tími til að blogga í fríinu :)

Ég veit - ekki verið dugleg, enda búið að vera nóg að gera... hmm í fríinu.
Læt flakka hér nokkrar myndir af júnímánuði.


Björk fór um miðjan júní í skátaferðalag í tvær nætur og hitti aðra 900 skáta frá Danmörku, kom glöð og sæl heim með vinum sínum Melkorku og Hilmi.


miðvikudagur, maí 23, 2007

er að verða búið!

Nú fer að líða að ritgerðarskilum hjá okkur, dagarnir eru taldir niður og mikil tilhlökkun að komast í frí.
Börnin orðin hundleið á sömu svörunum hjá okkur með að allt verði að bíða þangað til eftir skil, þau eiga orðið inni þó nokkrar sundferðir, strandferðir og ekki sé á minnst tíma frá okkur foreldrunum.
Þau voru nú samt svo ótrúlega heppin að fá í heimsókn ömmu jenný og afa ingva sem að bjóða upp á það sem að foreldrarnir geta ekki gert.

Ég er búin að skrifa mína ritgerð og er byrjuð á yfirlestrinum, hef sex daga í það - er því frekar róleg yfir þessu öllu saman. Ingvar er aftur á móti í smá basli með sína ritgerð, er í fjögurra manna hóp sem er ekki alltaf sammála og á þó nokkuð eftir af ritgerðinni. Hann sést þess vegna ekki mikið heima hjá sér þessa daganna og er orðin langþreyttur eftir veturinn. Hann fær þó smá frí áður en hann fer heim að vinna þar sem hann þarf ekki að verja ritgerðina sína fyrr en 20. júní - við náum þá smá fríi saman fjölskyldan í heita sumrinu sem á að vera hér í sumar, það er spáð heitara sumri en var síðast og það þótti vera heitt!



Feðgarnir að róla sér á rólóvellinum sem er við tjörnina hjá okkur.

Kjút umhverfið hjá okkur.. gæti ekki verið meira næs.

Björk að koma úr víkingaferðinni í víkingaklæðinu og búin að smíða kross.

Ingvar að töffarast með nýju RayBan sólgleraugun - tekur þau varla af sér.. notar þau meira að segja við eldamennskuna :)

Amma og Afi komin!

Knus
H.

miðvikudagur, maí 09, 2007

fyrsta skólaferðalagið

Björkin okkar fór í fyrsta skipti í skólaferðalag í morgun og verður frá okkur í tvær nætur.
Hún er búin að vera mikið spennt og glöð yfir þessari ferð, enda ekki skrýtið þar sem það er svo gaman að fara í skólaferðalag með bekknum sínum og kennara.

Það er búið að vera mikill undirbúningur að þessari ferð sem er farin í þeim tilgangi að kynnast sögum og háttum víkinga. Síðustu tvær vikur hafa farið í að læra um víkinga og goð, og Björk segir okkur spennt frá goðasögum eftir skóladaginn.
Við saumuðum mægðurnar rosa flottann víkingabúning og Björk broderaði fallegan kant sem var saumaður á.
Þau fá síðan heimsókn frá "ekta" víkingum og taka þátt í smá athöfn og heyra sögur.
Hún fer nú ekki langt stelpan, þau gista í einhverju skátaheimili sem er 10km utan við álaborg, en hún fer símalaus sem þýðir að við fáum ekkert að heyra frá henni í 3 daga! Það er dálítið erfitt fyrir áhyggjufulla foreldra :)


H.

sunnudagur, maí 06, 2007

Tíminn líður...

... 9 dagar í tengdó!
... 16 dagar til að skrifa ritgerðina (er með skrif áætlun)!
... 23 dagar í ritgerðarskil!
... 23 dagar í sumarfrí!!!
... 25 dagar í Rúnu og Brynju!

Úff hvað tíminn er fljótur að líða, dagarnir og vikurnar bókstaflega hverfa.
En margt að hlakka til og þess vegna er það svosem ágætt að tíminn sé fljótur að líða.

Samkvæmt síðustu færslu sem að hefur verið að endunýja hjá mér veðrið, þá er byrjað að rigna hjá okkur.. já loksins! Nú getur maður setið inni og skrifað næstu 7 daga í rigningu - sem er bara fínt.
Við erum búin að nýta okkur síðustu sólardaga mjög vel, mikið búið að grilla og hugga sig með vinum og allir orðnir brúnir og sællegir :)
Í gær fórum við til Silkeborgar á jyllands ringen að skoða fullt af ferrari gripum og tókum svo sveitaleiðina heim og stoppuðum á krá á leiðinni og fengum okkur að spisa danskan kráarmat.
Nýttum svo síðustu geislanna í dag og kíktum í dýragarðinn með Kristínu og Kára.

Nú er að koma sér í gang aftur og nýta komandi viku mjög vel!

H.

þriðjudagur, apríl 24, 2007

Blíða

ohh hvað það verður erfitt að vera inni að lesa í þessari blíðu :)
Það verða bara sett upp sólgleraugun og lesið úti held ég...



2 til 6-døgnsudsigt

H.

mánudagur, apríl 23, 2007

Könnun

Jæja! nú er búið að starta spurningakönnuninni og liggur hún á forsíðu gegnis.
Hef fengið fína svörun í dag og ég vænti þess að könnunin þurfi ekki að vera lengur en í 7 daga til að fá ásættanlega útkomu.

Nú þegar öll erfiðisvinnan er að verða búin hlakka ég mikið til að halda áfram að skrifa sem hefur setið á hakanum við vinnuna á könnuninni og svo á matinu á öðrum rafrænum bókasöfnum sem að bjóða upp á "personalization".. klæðkerasaumaðar síður.

En þeim sem að hafa brennandi áhuga mega endilega taka þátt!
www.gegnir.is undir spurningakönnun

H.

sunnudagur, apríl 22, 2007

Afmæli búin í bili

Björk bauð bekknum sínum í afmælisveislu í gær. 10 krakkar og auðvitað var útbúin dagskrá fyrir liðið í þá þrjá klukkutíma sem að veislan stóð yfir með ratleik, eggjahlaupi og rundbold. Allt heppnaðist vel í yndislegu veðri.


Svo fékk Björk hjálminn sinn í vikunni sem hún pantaði frá Berlin, rosa flottur rauður með hvítri stjörnu á. og loksins fékk hún að fara í fyrsta mótorhjólatúrinn sinn.

Og mamman líka - við pössum í sömu stærð af hjálm, mjög hagkvæmt. en ég þarf að fá mér lokaðan til að fara lengri vegalengdir.


Borðaðar pizzur úti í sólinni á milli leikja.

Fengum rosa flottann sandhól fyrir strákanna sem þeir geta dundað sér í með gröfurnar sínar og vörubílanna.



Og svo á Eiður Snær frændi afmæli í dag
Til hamingju með 11 ára afmælið Eiður!!!

H.

miðvikudagur, apríl 11, 2007

Einu sinni...


Björk 5 ára á Víðimelnum



Ári seinna kominn lítill bróðir og flutt yfir á Ránargötuna.

Ekki svo langt síðan - og þó...

H.