Bjartur gamlársdagur í Álaborg.
Hér er fallegt gamlársveður, léttskýjað og 9 stiga hiti.
Börnin öll fjögur komin út í sápukúluleik og ég er að spá í að drífa mig út og taka einn skokkhring - eitt af nýársheitunum hjá mér verður meira skokk, best að enda árið 2006 á einu skokki til að koma mér af stað! :)
Var reyndar spáð hvössu veðri í dag, en það virðist hafa færst fram á nýársdag.
Kvöldið er að sjálfsögðu skipulagt með vinunum hér Ved Dammen.
Planið er að hugga sig yfir rackletti, með nóg af mat og góðum tíma til að borða.
Við vorðum uppi hjá Sigrúnu og Ella og förum svo niður í síðpartý hjá okkur með kampavíni, kransaköku og snakki, skjótum upp og horfum á áramótaskaupið í gegnum tölvuskjáinn.
Kampavínið komið í kælinn og búið að kaupa einn lítinn pakka af lélegum dönskum rakettum - áramótanna á íslandi er mikið saknað, með flottustu kökunum og stærstu rakettunum... en það veður að bíða í tvö áramót til viðbótar.
Annars hefur árið verið ótrúlega viðburðaríkt hjá okkur familíunni í álaborg og einhvern veginn hefur allt gengið upp. Skólinn hefur gengið vel, fengum bæði vinnu í sumar með áframhaldandi vinnu hjá Ingvari, og svo var toppurinn á árinu flutningurinn í haust í þetta yndislega hús sem við fengum. já og svo náðum við að selja bimmann loksins :)
Höfum fengið ótrúlega hjálp frá foreldrum og vinum, án hennar hefði atburðarásin verið önnur - og erum við óendanlega þakklát öllum!
Næsta ár verður spennandi, við náum loksins að útskrifast með bachelor (35 ára!!, ég verð reyndar "bara" 34 ára :) ) og byrjum á master næsta haust, vinna næsta sumar heima eða hér.. og fáum að njóta vorsins og sumarsins í húsinu okkar.
Skelli inn nokkrum myndum eftir skokkið!
Knus
H.