mánudagur, október 30, 2006

Bakað í ofninum... fyrsta tilraun

Þá var komið að því að elda í ofninum, eftir nokkra daga upphitun.
Og auðvitað voru eldaðar heimabakaðar pizzur við mikinn spenning. Tókust þær mjög vel, ofninn hefði mátt vera aðeins heitari, þær voru í smá tíma að eldast - en góðar voru þær!

Það tekur smá tíma að ná tökum á ofninum. Hann þarf 14 kíló af eldivið á hverjum degi til að hann haldi sama hitastigi, þá á efri ofninn að vera 250 gráður hvenær sem er sólarhrings.


Ofninn er risastór, örugglega tvöfalt stærri en venjulegur bakaraofn.
Gott að geta gripið til ofnsins þegar bakaofninn er í notkun og svo auðvitað er planið að vera dugleg að baka brauð í honum :) Vantar bara góðar brauðuppskriftir, endilega sendið mér einhverjar góðar, helst hollustubrauð með spelti og kornum.

Björkin byrjuð að búa til jólagjafir. Tók fram málningasettið sitt og gömlu svuntuna sína - vel græjuð daman :)

Annars eru mamma og pabbi að koma í heimsókn, og hlakkar öllum rosa mikið til að fá þau í nýja húsið. Mamma kemur á fimmtudagskvöldið seint og verður í 10 daga. Pabbi kemur 8.nov og þau fara svo saman heim. Þau ná fyrstu köldu haustdögunum hér með einhverri sól. Skárra en það sem er búið að vera heima, en reyndar er að hlýna þar og kólna hér.. að venju omvendt.

Sama ástand hjá okkur. Net, síma og sjónvarp fáum við í kringum 8. nóvember - erum búin að þrauka þetta í heilan mánuð. Svosem ágætt að vera sjónvarpslaus í einhvern tíma en net- og símaleysið er búið að vera okkur mjög erfitt. Sérstaklega þar sem við höfum ekki tileinkað okkur þá hefð að vinna og lesa uppí skóla eða á bókasafninu, gerum allt að heiman.
Svo verður hringt í alla þegar síminn kemst í samband :)

Tíminn hjá okkur breyttist um helgina, nú erum við bara klukkutíma á undan.
Rosa sniðugt system, nú er aftur bjart þegar við vöknum á morgnanna.

Knus
H.

þriðjudagur, október 24, 2006

Lífið er ljúft Ved Dammen


Börnin að fylgjast með Ingvari að setja saman rúmið í annað skiptið! og það síðasta! Held að það verði keyptur nýr rúmbotn þegar við komum heim til Íslands.

Ingvar Andri vildi fá hádegismatinn út þar sem honum fannst vera svo huggulegt í góða veðrinu. Og kominn með nýjan "fara hjá sér" svip..

það var kveikt í báli úti til að brenna nokkrum pappakössum og rusli úr flutningum. Það fannst einn stjörnuljósapakki hjá Sigrúnu og Ella við góðar undirtektir krakkanna og svo voru grillaðir sykurpúðar og settir í kexkökur að dönskum hætti.
Feðgarnir að spila PS, nema öðrum þeirra leiddist mikið að bíða eftir að komið væri að sér og sofnaði, enda mjög þreyttur eftir daginn.




Átti að koma ein mynd (kunni ekki að eyða annarri) En allavega er verið að kynda upp í ofninum í fyrsta skipti - mikil serimonia :)





Er mikið að kubba og gerða þennann fína bíl með stýri og sæti.. mjög glaður með þetta.


Þegar búið var að koma sér fyrir í herberginu voru skabalónin frá Fríðu og Hansa sett í gluggann loksins, búið að bíða lengi eftir því.

fleiri myndir

Ingvar Andri sofnaði á gólfinu í skalló þegar við þrifum það að kvöldi 1. okt. Hann svaf af sér öll þrif og opnaði ekki einu sinni augun þegar hann var fluttur á milli húsa seinna um kvöldið.


Allir þreyttir, þó sérstaklega sumir ;)


Björk að koma sér fyrir í nýja herberginu sínu, er að raða fötunum sínum í skápinn sinn stóra.


Ein mynd frá því ég fór til köben. Mér fannst þetta svo kjút útisvæði á milli húsanna, þar sem börn og foreldrar hittust seinni part dags.

myndir myndir

Skelli hér inn nokkrum myndum á meðan ég er að vinna á bókasafninu og er með netsamband :)

Fyrsta nóttin, allir sváfu á dýnu í hjónaherberginu.


Elli og Ingvar tóku forskot og sváfu nóttina fyrir flutning í húsinu. Til að passa upp á það sem búið var að flytja. Tóku auðvitað eitt spil með nokkrum ölum.






þriðjudagur, október 10, 2006

komst á netið :)

Sit með tölvuna hér í lobbíinu á hótelinu í köben.

Það er eitthvað vesen með með tengingu á síma og neti inn í húsið hjá okkur, TDC segir að það komist í gang þann 8. nóvember!!! hvorki meira né minna og við verðum gjöra svo vel að bíða eftir því! því miður erum við ekki fær í að rífa kjaft á dönsku, en svona mundi maður ekki láta bjóða sér á íslandi. Við vitum ekki hvað er að, en þeir finna ekki tenginguna inn í húsið og þurfa að laga eitthvað hjá sér og það tekur takk fyrir heilann mánuð...

Húsið er æðislegt og okkur líður rosalega vel þar. Gæti ekki verið betra :)

Þeir voru alla síðustu viku að klára húsið, mættir kl 7 á morgnanna - þannig að maður varð að koma sér á fætur áður en þeir bönkuðu á hurðina hjá okkur. En þetta skotgekk hjá þeim og kláruðu þeir stærstu verkefnin á föstudaginn, smotteríið klára þeir í vikunni.

Erum að koma okkur fyrir í rólegheitum, ásamt því að mæta í skólann og sinna hversdagsleikanum.
Skruppum til Ikea á föstudaginn og versluðum okkur 19 stk!! gardínur á 45kall stykkið, kommóðu inn til Bjarkar og fleira smádót.

Við setjum inn myndir við besta tækifæri eða þegar við komumst í netsamband :)

Ég er semsagt í köben núna í stúdentaferð. Ætla reyndar ekki að vera út ferðina, tek lestina heim annað kvöld. Svo er haustfrí í næstu viku, þannig að þessi vika og næsta nýtist vel í að koma sér fyrir og kannski maður læri eitthvað líka... þarf að starta verkefninu mínu sem fyrst og ætla að nýta tímann líka í það!

H.

net- og símaleysi

vid verdum net- og símalaus fram til 4. nóvember takk fyrir!
gsminn verdur ad virka á medan...

annars læt ég vita betur af okkur, er núna í køben i studietur og fer heim á midvikudagskvøldid, nenni ekki ad vera út vikuna.

Húsid nýja er ædislegt - algjør draumur :) !

knus
H.