miðvikudagur, september 27, 2006

Innbrot í nýja húsið!

Það var brotist inn í húsið í nótt!
Það var farið inn um einn gluggann inn í svefnherbergi hjá okkur, hann skemmdur og þaðan komust þeir inn og stálu öllum verkfærunum fyrir utan þeim sem ekki er hægt að burðast með léttilega, ofninum og helluborðinu á báðum hæðum!!!
Semsagt vantar einn glugga og eldunartækin og 4 dagar í flutning.
Og eigandinn á hjólaferðalagi í Frakklandi og kemur ekki fyrr en á sunnudaginn!

Það var víst farið í fleiri nýbyggingar hér á svæðinu og stolið sömu hlutum.

Við vorum að spá hvort við fengjum eitt herbergi í vikunni til að byrja að flytja kassa og fleira á meðan - eins gott að við gerðum það ekki.

Nú er bara að krossa fingur og vona að þeir reddi þessu áður en við fáum afhent...
Annars sofum við útí kolonihúsi bara :)

H.

þriðjudagur, september 26, 2006

5 dagar í flutning!

Opið inn í eldhúsið, kominn flíslögð stétt fyrir framan og hellulagt meðfram húsinu.

Séð inn í eldhúsið hjá Sigrúnu og Ella og inná baðherbergið.

Stofan hjá okkur, hægt að ganga inn í hana úr holinu á vinstri hönd.

Eldhúsinnréttingin komin upp, fáum fína skápa sem snúa að borðstofunni.


Björk í eldhúsinu og opið út í garð - huggó :)


Og ofninn flotti, hann á víst að kynda það mikið að það við getum slökkt á hitnanum þegar við kyndum upp í ofninum. Hitinn hjá okkur er í öllum gólfunum.

Annars allt gott, allir orðnir spenntir hér að flytja.
Mikil vinna eftir að koma sér fyrir og þrífa skalló ásamt skilum á verkefnum í skólanum! Svo ætlar Ingvar að fara á miðvikudaginn yfir til Svíþjóðar að testa bíla, verður sem betur fer í einn dag og stutt fyrir hann að fara núna.

Og góðar fréttir!! Mamma ætlar að koma í heimsókn til okkar í byrjun nóv. og verður í rúma viku - Hlakka mikið til að fá hana til okkar, við huggum okkur í nýja húsinu :)

Ingvar Andri var ekki sáttur við mig á sunnudaginn þegar ég var búin að pakka niður næstum öllu dótinu hans, spurði hvar ákv. bók væri og sagði svo mjög fúll "æiii nei mamma" Verður örugglega glaður að taka upp dótið aftur á nýjum stað.

Ég reyni að setja inn myndir um helgina, ef ég get, eða á mánudagskvöldið, sjáum til.
Er allavega orðin mjög lúin núna, ætlaði að þrífa eldhússkápa í kvöld en ég held að ég orki það ekki.

Góða nótt

H.


sunnudagur, september 17, 2006

Það helsta..


Nú er sólarvertíðinni lokið, erum búin að fá æðislegt veður í síðustu viku, sól og hita. Höfum notið þess og verið í garðinum og spókað okkur aðeins í bænum.. grillað og haft það gott.
Þá er að sættast við það að haustið sé komið, laufin að roðna og kólnandi veðurfar.

Pökkunin er komin vel í gang, pakkaði ég hluta af eldhúsinu og við Björk pökkuðum herberginu hennar í gær.
Þetta verður heljarinnar vinna að pakka, flytja og þrífa - er fjölskyldunnar sárt saknað :)


Ingvar fór á föstudaginn til Faro í Portúgal, hann var það síðast fyrir 15 árum, þegar við vorum í útskriftarferðinni okkar :) þurfti að að taka 3 vélar til að komast þangað og tekur svo 3 vélar til baka, plús lestina til Álaborgar. Langt ferðalag fyrir einn dag í reynsluakstur! Lagði af stað fyrir kl. 6 í morgun í flug til Lissabon, svo til London og svo áfram til Köbenhavn, tekur lestina þaðan til Álaborgar og verður kominn rétt fyrir níu í kvöld...

Hann tók sem minnstan farangur, kom öllu í þessa litlu tösku sem er í leyfilegri stærð sem handfarangur.

En hann var rosa glaður með þennann eina dag, var á 5 stjörnu hóteli, fékk bílinn sem hann vildi, fékk reynsluakstur með frægum ökumanni og spjallaði við aðalfólkið á staðnum. Hann er fær í að ná sínum markmiðum strákurinn!

Ingvar Andri ákvað einn daginn að gera alveg eins og pabbinn sinn, vildi pissa í klósettið alveg eins og hann!! Pabbinn tók undir þetta hjá syninum, allt gert til þess að hann pissi í klósettið. En því miður fer ekki allt ofan í skálina, fer aðeins á bolinn, á gólfið fyrir framann klósettið, aðeins til hliðar, og stundum er maður svo mikið í spreng að bunan nær alveg yfir skálina!
Einnig þarf að halda lillanum líka við þessa athöfn og við það blotnar hann á höndunum...
Það verður tekið fyrir þetta strax, ég nenni ekki að standa í þessu, sérstaklega ekki í nýja fína baðherberginu. :)

Það er verið að vinna í húsinu langt fram á dag, einnig um helgar.
Greinilegt að maðurinn ætlar að standa við gefna dagsetningu. Hann stefnir að því að klára fyrir föstudaginn, þar sem hann er að fara til frakklands í hjólaferðalag. Við getum þá fengið að flytja hluta af búslóðinni yfir og byrjað að mála og þrífa á skalló, ekki veitir af tímanum.
Það verður hiti undir öllum flísunum á okkar hæð, eldhúsinnréttingin verður hvít og dökkgrá - gátum því miður ekki breytt því, en við komum með fyrirspurn með að fá gaseldavél, vonum að það gangi eftir. Annars eru þeir að klára að ganga frá húsinu og mála að innan, síðan setja þeir innréttingarnar upp og tækin, ætti ekki að taka langann tíma - þá er húsið tilbúið til flutnings.

Mynd af sturtuklefanum, getið séð flísarnar þar og á gólfinu í baðherberginu.


Jæja, börnin, læra og pakka :)

H.

mánudagur, september 11, 2006

Jæja elskurnar, eins og sést á litlum skrifum hér, er farið að aukast hjá okkur verkefnin á heimilinu.

Skólarnir eru komnir vel í gang og ég er byrjuð að skipuleggja tvö verkefni.
Þarf að klára fyrri hlutann í öðru verkefninu áður en við flytjum, ég þarf að kynna þann hluta munnlega 4.okt. Verkefnið er prófverkefni í tveimur hlutum, nær yfir önnina.
Og stærra verkefnið sem ég tek í valfaginu Design og Evaluering af Informationsystemer, þarf ég að byrja á, ákveða hvað ég ætla að skrifa um og skipuleggja það.

Nóg að gera hjá Björkinni... hún byrjaði í síðustu viku að spila celló aftur eftir tveggja ára hlé!
Hún er mjög sæl með að vera byrjuð aftur, var ekki að finna sig í fiðlunni síðasta vetur. Hún heldur samt áfram að spila á fiðluna í skólanum í vetur.
Hún byrjar í dag að mæta í íslensku tíma, þarf að hjóla þangað eftir skóladaginn. Þar verður hún með fleiri íslenskum krökkum og verður í tíma með eldri nemendum.
Á þriðjudögum eru skátakvöld í öster uttrup, þar hittir hún krakkanna úr hverfinu.

Ingvar Andri er hinn glaðasti þessa daganna. Honum hlakkar til að fara í leikskólann, og þegar við sækjum hann er hann alltaf brosandi. Svo þegar hann kemur heim vill hann vera úti að hjóla með Eið vini sínum eða dunda sér inní herberginu sínu - mjög sáttur.

Myndin er af þeim vinum á bmw-formula bílnum hans Eiðs, Ingvar Andri var MJÖG hrifinn :) Skiptust þeir á að ýta hvor öðrum, rosa gaman hjá þeim.

Hann er byrjaður að mæta einu sinni í viku í musikalsk legestue, þar sem nokkur börn og fá að spila á hljóðfæri og syngja. Honum fannst þetta rosa gaman, söng og tók þátt í öllu sem gert var, fylgdist með einbeittur.

Einnig er hann farinn að minnast á að fara til Ömmu Ásu í heimsókn, er alveg til í að fara í lestina og flugvélina aftur til að komast til Íslands. Talaði um þetta nú síðast í morgun við morgunmatinn :)

Nú er komin aðeins betri mynd á húsið, komin gólfefni og búið að loka öllum hliðum. Hjá okkur eru komnar ljósar flísar á öll gólf nema baðherbergið, þar sem eru dökkar flísar.
Það er fínn gangur í þessu núna og hann ætlar að standa við dagsetninguna sunnudaginn 1. okt. Það er eins gott að það standist, þar sem við þurfum að skila skalló þann 2. okt. kl 11.30 :)
Við byrjuðum að pakka um helgina og erum búin að ákveða að mála og kannski að pússa yfir parketið niðri.. verður semsagt nóg að gera hjá okkur næstu 20 daga!

Húsið séð frá tjörninni í gær í yndislegu veðri. Risið, baðherbergið hægra megin og eldhúsið vinstra megin. svo eru herbergi strákanna innaf eldhúsinu.













Eldhúsið og borðstofan, hurðin útí garð er tvískipt og svo ljósu flísarnar á allri hæðinni. Þvottaherbergið er við endann á eldhúsinu og þar fyrir innann eru herbergi krakkanna.
Yfir öllu húsinu er risloft - nýtist okkur mjög vel. Þurfum ekki að leigja okkur geymslur fyrir 300dkr á mánuði!

Svo er Ingvar að fara á föstudaginn til Portúgals, verður þar í 3 daga að reynsluaka porsche, ekki leiðinlegt það!

Við lentum í dýrindis sushi veislu hjá Kristínu og Kára á laugardaginn, hún Kristín er snilldarkokkur og maturinn var algjört æði! Takk fyrir okkur Kristín :)
Þegar við erum flutt ætlar Kristín að koma yfir og kenna mér listina við að matreiða sushi...

Fleiri myndir í vikunni!

H.

sunnudagur, september 03, 2006

Ingvar kominn!

Nú er fjölskyldulífið okkar hér í Álaborg orðið virkt aftur, Ingvar kom loksins heim i gær.
Hann er búinn að vera í tæpa þrjá mánuði að heimann, fór á undan mér og kom 10 dögum á eftir mér.. vildi ná sem mestu úr sumrinu og hefur tekist það. Sannaði sig með stæl eins og honum er lagið og er kominn með fréttapassa frá morgunblaðinu, verður fréttaritari í vetur með náminu ásamt greinaskrifum fyrir bílablaðið - Nóg að gera hjá honum eins og alltaf, duglegur í því að hafa nóg fyrir stafni, hann lifir á því. Á meðan hef ég nóg með námið mitt og mundi ekki orka mikið meira en það - svona erum við ólík :)

Ætlum að kíkja á nýja húsið á eftir og kannski ég plati hann í að ná í flutningskassanna með mér, þeim er vel pakkað ofan í tréflutningkassa sem er út í geymslu - þá getum við byrjað að pakka.

Fyrsti skóladagurinn hjá mér var á föstudaginn. Önnin leggst bara vel í mig, verður aðallega unnið með verkefni og er lestur og kennsla í valfaginu mínu bara í september, eftir það verður engin tímasókn í því fagi og unnið með verkefnið, skil á því er 21.desember. Munnleg vörn á því er í janúar. Svo er ég í öðru skyldufagi þar sem ég skila líka af mér verkefni, en það er mikið minna og skilast sem munnlegur framurður í tíma, ekkert próf.
Gaman að vera á síðasta ári, senior nemi.. þ.e. i bachelor :)

Jæja Ingvar búinn að snyrta sig - ætlum að renna yfir í öster uttrup

H.