Krakkarnir byrjaðir í skólanum og leikskólanum, Ingvar Andri var fljótur að kveðja mig á mánudaginn þegar ég fór með hann í leikskólann, vildi fara inn og leika við krakkanna. Sagði að þetta væri leikskólinn sinn, glaður að byrja aftur.
Björk er byrjuð í gæslu eftir skólann hjá sér sem er svo gaman í að hún kemur heim þegar gæslan lokar eða um klukkan hálf sex, drulluþreytt og svöng, hefur þá gleymt að borða yfir daginn - hún er dálítið gjörn á að gleyma að borða, segir að það hafi ekki verið tími, var bara einn matartími segir hún. Hún er smá utan við sig þessi elska.
Hérna er mynd af þeim dauðþreyttum eftir skóladaginn að horfa á barnaefni í sjónvarpinu:

Amma Día og Björg frænka komu í heimsókn í dag. Fór ég með þær smá rúnt í öster uttrup, sýndi þeim nýja húsið okkar og sumarhúsið, enduðum svo í bænum þar sem var tekinn stuttur túr. Amma var orðin lúin eftir daginn og gat ekki labbað mikið. Ég eldaði snemma og við gátum borðað úti saman áður en þær lögðu af stað til Horsens.


Ingvar Andri var svo heppinn í gær, mamma hans fann rosa flottann Cars bol í h&m, fór hann mjög svo stoltur í bolnum í morgun, sagði öllum að þetta væri CARS!
Er að benda á hann:


Hjá mér er líka allt að komast í rútínu. Ég er byrjuð að prenta út skólagögn og á að mæta á föstudaginn í fyrsta tímann, þarf meira að segja að lesa smá. Gaman gaman!
H.



































