miðvikudagur, júlí 26, 2006

mamma á afmæli í dag!

*** Til hamingju með afmælið elsku besta mamma! ***

Börnin okkar eru í bústað með foreldrum mínum og við erum búin að vera barnlaus síðan á sunnudag. Voða skrýtið, við söknum þeirra mikið, liggur við að manni leiðist það bara - svona er maður háður börnunum sínum. Svo koma þau öll heim annað kvöld.

Við Ingvar ákváðum að nota tækifærið og hugga okkur eftir vinnudaganna, fara í bíó, fara út að borða, kíkja aðeins í heimsóknir og svo smá búðarrölt.

Ekki nóg með það að við séum ein í stóru húsi núna, við erum líka með planið hjá okkur fullt af bílum sem við getum valið úr!
Erum með tvo bíla frá Sibba, Það þarf víst að hreyfa þá á meðan þau eru úti í stokkhólmi, einn reynsluakstursbíl og mömmubíl - liggur við að maður segir úllendúllendoff þegar maður fer út á morgnanna :) Og ég sem ætlaði að hjóla eða labba í vinnunna í sumar... hef einu sinni labbað og einu sinni hjólað.. uss uss. Ég hef ekki einu sinni farið út að skokka! Enda er þetta sumar hér búið að vera með endemum leiðinlegt og grátt. Ég bæti úr þessu þegar ég kem heim!

Í kvöld ætlum við systkynin á kaffihús með Astrid frænku okkar frá Luxembourg, hún er búin að vera hér í nokkra daga og fer aftur til Lux á morgun.

H.

þriðjudagur, júlí 25, 2006

ákvað að prufa

Greinilega ekki hægt að treysta á Ingvar núna, enda hefur hann
meira en nóg að gera og ég hef aðeins meiri tíma :)

Sit ein heima, alandi ein meira að segja, engir foreldrar, engin börn og engin Ingvar. Skrýtið! Ég ákvað að nýta rólegheitin og starta smá bloggsíðu um okkur fjölskylduna í álaborginni. Hef inspirerast smá af Kristínu, er orðin daglegur gestur á hennar síðu ásamt nokkrum öðrum.

Allavega - ég og börnin erum búin að flýta heimferð og fljúgum við 23.ágúst og náum þá vonandi smá dönsku sumri þegar við komum. Ingvar Andri er farinn að segja að hann vilji fara heim til Danmerkur núna, honum finnst ekki gaman á Íslandi lengur. Hann er farinn að tala um ákveðna bíla sem bíða eftir honum heima, er greinilega með lagerstöðuna á bílunum sínum á hreinu!
Ingvar vinnur svo út ágúst og flýgur 2.sept. - nær ekkert að pústa strákurinn, vonandi fer skólinn rólega af stað og að við fáum gott síðsumar.

Ætla að njóta friðarins og lesa smá fyrir háttinn!

H.