sunnudagur, desember 31, 2006

Gullbrúðkaup

Þann 4. ágúst áttu tengdaforeldrar mínir 50 ára brúðkaupsafmæli.
Set inn nokkrar myndir af eftirminnilegu kvöldi úr veislunni sem var haldin í Ingólfsstrætinu.



Grillað í garðinum með Ingvar yfirgrillara við stjórn, fengum yndislegt veður.

Ein mynd af litlu sætu íbúðinni okkar með fallegu svölunum.


Jenný, Katrín systir hennar og Lilla frænka þeirra.

Það var mikið dansað og sungið.

Öll börnin fengu að sofa saman hjá ömmu Ásu.. og fengu að ráða matnum - pulsur og franskar :)

Sumarið 2006

Ásdís skvísa
Steinunn syss og mamma - Við mæðgurnar skruppum á B5 í sumar.


Síðasta kaffihúsaferðin áður en haldið var heim með ömmunum.



Auðvitað fann Ingvar Andri mótothjól í kringlunni og vildi prufa...

** Gleðilegt nýtt ár 2007 **

Bjartur gamlársdagur í Álaborg.
Hér er fallegt gamlársveður, léttskýjað og 9 stiga hiti.
Börnin öll fjögur komin út í sápukúluleik og ég er að spá í að drífa mig út og taka einn skokkhring - eitt af nýársheitunum hjá mér verður meira skokk, best að enda árið 2006 á einu skokki til að koma mér af stað! :)
Var reyndar spáð hvössu veðri í dag, en það virðist hafa færst fram á nýársdag.

Kvöldið er að sjálfsögðu skipulagt með vinunum hér Ved Dammen.
Planið er að hugga sig yfir rackletti, með nóg af mat og góðum tíma til að borða.
Við vorðum uppi hjá Sigrúnu og Ella og förum svo niður í síðpartý hjá okkur með kampavíni, kransaköku og snakki, skjótum upp og horfum á áramótaskaupið í gegnum tölvuskjáinn.
Kampavínið komið í kælinn og búið að kaupa einn lítinn pakka af lélegum dönskum rakettum - áramótanna á íslandi er mikið saknað, með flottustu kökunum og stærstu rakettunum... en það veður að bíða í tvö áramót til viðbótar.

Annars hefur árið verið ótrúlega viðburðaríkt hjá okkur familíunni í álaborg og einhvern veginn hefur allt gengið upp. Skólinn hefur gengið vel, fengum bæði vinnu í sumar með áframhaldandi vinnu hjá Ingvari, og svo var toppurinn á árinu flutningurinn í haust í þetta yndislega hús sem við fengum. já og svo náðum við að selja bimmann loksins :)
Höfum fengið ótrúlega hjálp frá foreldrum og vinum, án hennar hefði atburðarásin verið önnur - og erum við óendanlega þakklát öllum!

Næsta ár verður spennandi, við náum loksins að útskrifast með bachelor (35 ára!!, ég verð reyndar "bara" 34 ára :) ) og byrjum á master næsta haust, vinna næsta sumar heima eða hér.. og fáum að njóta vorsins og sumarsins í húsinu okkar.

Skelli inn nokkrum myndum eftir skokkið!

Knus
H.

miðvikudagur, desember 20, 2006

Julehygge

loksin loksins loksins komin í "jólafrí"

Ég skilaði ritgerðinni minni í dag og Ingvar tók síðasta prófið fyrir jól í morgun, sem var að sjálfsögðu klárað með stæl! Hann fékk einnig einkunina úr þýðingarprófinu i dag, stóðst það!!
Atburðamikill og góður dagur, alltaf gaman að sjá afrakstur i enda tarnar - og vinnan er vel þess virði þótt hún sé erfið á ákveðnum tímapunktum.

Nú þarf að klára það sem hefur setið á hakanum síðustu vikur.
Við eigum eftir að ákveða og kaupa inn fyrir helgina og þrífa! Einnig að jólahuggast aðeins í bænum og kaupa restina af jólagjöfunum.
Jólatréð sem við völdum og söguðum niður er komið upp með öllum fallegu jólakúlunum síðustu 15 ára - er voða fallegt og nýtur sín vel í nýja húsinu.

Það er búið að bjóða okkur í mat á jóladag! Kristín og Kári eru svo sæt að bjóða okkur í íslenskt hangikjöt og með öllu sem að því fylgir namminamm..

Takk fyrir öll fallegu jólakortin sem eru að berast inn í hús til okkar!! Við náum því miður ekki að senda jólakort í ár, ætlum að senda þess í stað kveðjuna rafrænt í ár :)

Jæja - Eldamennskan kallar!

Knus
H.

föstudagur, desember 15, 2006

erum enn hér..

Ég er að leggja lokahönd á verkefnið mitt. Ætla að klára í dag að skrifa restina með niðurstöðum, þá hef ég helgina, mánudag og þriðjudag að lesa yfir og laga. Ég hefði alveg viljað hafa viku í viðbót til að gera hana ennþá betri... verð bara ennþá skipulagðari með ba ritgerðina :)

Ingvar minn er búinn að vera í prófum og próflestri í mánuð núna!
Hann er orðinn frekar lúinn, þarf að lesa í mánuð í viðbót, tekur síðasta prófið 24.jan.
Er nú samt alltaf rólegur þessi elska, byrjaði til dæmis í heimprófinu sem átti að vera frá kl 9, ekki fyrr en seinni partinn því hann hélt að han ætti ekki að byrja fyrr en daginn eftir - var ekkert búinn að tékka á þessu nýlega - gerði ráð fyrir því að ekkert hefði breyst! Ótrúlegur, var svo minntur á þetta af stelpunum í grúppunni hans :)

Svo skilum við bæði þ. 20.des - það verður ljúft, náum að komast í einhverja jólastemmingu fyrir hátíðirnar og aður en við byrjum á næsta lestri.

Knus
H.

sunnudagur, desember 03, 2006

3.desember 1989 - Myrkramessa í MK

Í dag eru ótrúlegt en satt 17 ár síðan við Ingvar "byrjuðum" saman.
Og við erum 34 ára, sem þýðir að við erum búin að vera saman helming af ævi okkar!
Þetta er dálítið skrýtið, mér finnst þetta ekki vera svona langur tími... erum við orðin svona gömul!?

Tíminn líður víst hraðar því eldri sem maður verður!

Og já við eigum þá líka 7 ára trúlofunarafmæli í dag:)

Það verður ekki mikið um hugguleg heit í dag saman. Ingvar er að fara í próf á morgun og svo annað próf á föstudaginn. Ég finn eitthvað sniðugt að elda fyrir hann í kvöld.

Annars verður kveikt á jólatrénu hér í öster uttrup í dag með athöfn, við mætum að sjálfsögðu á það með börnunum.

Gleðilegan 1. í aðventu

Knus
H.

laugardagur, desember 02, 2006

Jólastemmingin byrjuð

Desember bara kominn!

Við fórum í kvöldbæjarferð í gær að versla jólagjafir þar sem var opið til tíu í flestum búðum bæjarins og til tólf í salling - mikil stemming. Falleg jólaljósin og búið er að setja upp jólaþorp og skautasvellið flotta.
Í dag var svo hinn árlegi jólabasar í skólunum hjá krökkunum. Þau voru búin að undirbúa basarinn í nokkrar vikur og tóku virkann þátt í deginum með því að standa í afgreiðslu og fengu að versla og spila í lottó, þó aðallega Björkin.

Það er nú ekki mikið búið að skreyta eða baka hér, erum þó búin að baka piparkökur og skreyta þær, svo liggja jólakassarnir á gólfinu, við skreytum mæðgurnar á morgun með Ingvari Andra.

Ingvar Andri einbeittur við að skreyta piparkökurnar sínar, rosa flinkur við þetta, gaf systur sinni ekkert eftir. Hann er með góðar fínhreyfingar og var mjög þolinmóður við þetta.

Fórum í bæinn 1.des til að ná smá jólastemmingu. Bærinn er voða fallegur, skreyttur ljósum, jólaþorpið komin og vagninn með brenndu möndlunum og sykurhúðuðu eplunum verður alltaf á vegi manns þegar farið er í bæinn.

Jólabasarinn í skólanum og leikskólanum hjá krökkunum var í dag. Hjá Ingvari Andra var mikið af heimalöguðum sultum, smákökum og konfekti, ásamt heimaprjónuðum sjölum og öðru fallegu. Við mæðginin stóðum vakt í rúman klukkutíma þar og seldum eitthvað smá af smákökum og öðru góðgæti. Bjarkar bekkur seldi vöfflur, og stóð hún vakt þar í dag.
Um morgunin áður en basarinn byrjaði þá voru allir bekkirnir í skólanum með atriði. Bekkurinn hennar var með tónleika þar sem krakkarnir spiluðu á fiðlu og Björk ásamt Hrolf bekkjarvini sínum spiluðu á cello - þau báru af, rosa flott, spiluðu einbeitt og vel.


Knusar
H.

Eldað með vinum

Við tókum okkur saman vinahópurinn við Ved Dammen og elduðum saman indverskan mat.
Fullt hús af börnum með, sem fengu að horfa á norrænt barna eurovision á meðan foreldrarnir borðuð.

Skvísurnar Sigrún og Kristín

Elli og Sigrún "uppi" nágrannarnir okkar góðu.

Krakkarnir inni hjá Björk að horfa á mgp barna eurovision.

Allir komu að eldamennskunni með einhverjum hætti.


Systurnar Kristín og Sigga, dálítið líkar :)

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

myndir-myndir-myndir

Vinirnir Eiður Orri og Ingvar Andri að dansa með músíkinni uppí rúmi - rosa stuð og rosa gaman - thumbs up!

Björkin sæta

Ingvar Andri breyttist í hund -



Amma Ása fór með krakkanna í dýragarðinn skemmtilega.

D - day hjá Ingvari!

Nú situr Ingvar greyjið í þessu leiðinda þýðingarprófi. Yfirleitt er hann ekki stressaður fyrir prófin hjá sér, en yfir þessu prófi hefur sést smá kvíði. Enda ekki skrýtið, þar sem hann er að taka prófið aftur og ef hann nær þessu ekki núna þá nær strákurinn ekki að útskrifast í vor!!
Krossa fingur XXX

Ingvar Andri fékk aftur ælupest í nótt, kastaði tvisvar upp og skalf úr kulda greyjið. Náði að sofna aftur hjá mér og Ingvar færði sig yfir í hans rúm til að ná góðum svefn fyrir prófið. Svo í morgun vaknaði guttinn með öllum hinum hinn hressasti, fékk sér morgunmatinn sinn, inn í herbergið sitt, setti tónlist á og byrjaði að leika sér og syngja... fljótur að jafna sig! sem betur fer :)

Annars allt gott af okkur. Ég er búin að eyða miklum tíma í að gera problemformuleringu að projektinu mínu, held loksins núna að ég sé komin með hana og get þá byrjað að lesa og skrifa. Ég er ein með verkefnið og þarf að skrifa 7500 orð ca.20síður - skila því 21. des. Hlakka til !
Var að senda á leiðbeinandann minn uppkastið að því sem ég er búin að skrifa, bíð svo eftir kommentum frá honum... vonandi góðum!

Knus
H.

mánudagur, nóvember 20, 2006

Hafið þið séð nýju börnin okkar!?



Við fengum ný börn í síðustu viku, gjörbreytt eftir klippingu. Ekki frá því að þau hafi orðið aðeins eldri.. Björk var með ákveðnar skoðanir hvernig hún vildi hafa þetta, fékk það sem hún vildi með smá breytingu. Litli pjakkurinn fékk hinsvegar engu að ráða...

Rosa flott klipping hjá báðum, enda eru þau glöð með þessa stóru breytingu.

Myndirnar tala sínu máli :)


Mamma í heimsókn

Gaman að hafa ömmu sína til að kenna sér kapla og til að spila með, Björk var himinsæl með heimsóknina frá ömmu Ásu.


Amma Ása fór ein í bæinn að shoppa og keypti þennann flotta túnfisk í fiskibúðinni. Smakkaðist hann mjög vel :)

Björk fékk bók um hvernig eigi að gera vinabönd frá ömmu og afa þegar þau fóru til spánar "um daginn".




Vinkonurnar Björk og Melkorka

Pikknikk inn í herbergi hjá Ingvari Andra, djús og kökur - undir borði með fallegu teppin frá ömmu Jenný.


Ingvar mættur á svæðið með keðjusögina nýju, gleraugu og heyrnaskjól - skiptir öllu að hafa réttu verkfærin ;) Fékk Ella nágranna með sér í að saga við sem varð afgangs úr húsinu, nóg af eldivið til núna...

mánudagur, október 30, 2006

Bakað í ofninum... fyrsta tilraun

Þá var komið að því að elda í ofninum, eftir nokkra daga upphitun.
Og auðvitað voru eldaðar heimabakaðar pizzur við mikinn spenning. Tókust þær mjög vel, ofninn hefði mátt vera aðeins heitari, þær voru í smá tíma að eldast - en góðar voru þær!

Það tekur smá tíma að ná tökum á ofninum. Hann þarf 14 kíló af eldivið á hverjum degi til að hann haldi sama hitastigi, þá á efri ofninn að vera 250 gráður hvenær sem er sólarhrings.


Ofninn er risastór, örugglega tvöfalt stærri en venjulegur bakaraofn.
Gott að geta gripið til ofnsins þegar bakaofninn er í notkun og svo auðvitað er planið að vera dugleg að baka brauð í honum :) Vantar bara góðar brauðuppskriftir, endilega sendið mér einhverjar góðar, helst hollustubrauð með spelti og kornum.

Björkin byrjuð að búa til jólagjafir. Tók fram málningasettið sitt og gömlu svuntuna sína - vel græjuð daman :)

Annars eru mamma og pabbi að koma í heimsókn, og hlakkar öllum rosa mikið til að fá þau í nýja húsið. Mamma kemur á fimmtudagskvöldið seint og verður í 10 daga. Pabbi kemur 8.nov og þau fara svo saman heim. Þau ná fyrstu köldu haustdögunum hér með einhverri sól. Skárra en það sem er búið að vera heima, en reyndar er að hlýna þar og kólna hér.. að venju omvendt.

Sama ástand hjá okkur. Net, síma og sjónvarp fáum við í kringum 8. nóvember - erum búin að þrauka þetta í heilan mánuð. Svosem ágætt að vera sjónvarpslaus í einhvern tíma en net- og símaleysið er búið að vera okkur mjög erfitt. Sérstaklega þar sem við höfum ekki tileinkað okkur þá hefð að vinna og lesa uppí skóla eða á bókasafninu, gerum allt að heiman.
Svo verður hringt í alla þegar síminn kemst í samband :)

Tíminn hjá okkur breyttist um helgina, nú erum við bara klukkutíma á undan.
Rosa sniðugt system, nú er aftur bjart þegar við vöknum á morgnanna.

Knus
H.

þriðjudagur, október 24, 2006

Lífið er ljúft Ved Dammen


Börnin að fylgjast með Ingvari að setja saman rúmið í annað skiptið! og það síðasta! Held að það verði keyptur nýr rúmbotn þegar við komum heim til Íslands.

Ingvar Andri vildi fá hádegismatinn út þar sem honum fannst vera svo huggulegt í góða veðrinu. Og kominn með nýjan "fara hjá sér" svip..

það var kveikt í báli úti til að brenna nokkrum pappakössum og rusli úr flutningum. Það fannst einn stjörnuljósapakki hjá Sigrúnu og Ella við góðar undirtektir krakkanna og svo voru grillaðir sykurpúðar og settir í kexkökur að dönskum hætti.
Feðgarnir að spila PS, nema öðrum þeirra leiddist mikið að bíða eftir að komið væri að sér og sofnaði, enda mjög þreyttur eftir daginn.




Átti að koma ein mynd (kunni ekki að eyða annarri) En allavega er verið að kynda upp í ofninum í fyrsta skipti - mikil serimonia :)





Er mikið að kubba og gerða þennann fína bíl með stýri og sæti.. mjög glaður með þetta.


Þegar búið var að koma sér fyrir í herberginu voru skabalónin frá Fríðu og Hansa sett í gluggann loksins, búið að bíða lengi eftir því.