fimmtudagur, janúar 17, 2008

Julen 2007

Jólabörnin okkar flottu. Sá litli á reyndar erfiðara með að sýna myndarvélabrosið þegar beðið er um það, kemur einhver töffarasvipur ístaðinn.

Flotti riddarinn okkar!

Það var kubbað öll jólin; hús, þyrlur, bíla og annað fróðlegt og litli maðurinn er enn að kubba...

.. og er kubbandi allstaðar :)

Knusar, og þá sérstaklega til þín Rúna mín ;)

mánudagur, nóvember 26, 2007

Halló Halló

Björk er búin að taka við því starfi að kynda ofninn, hennar verkefni rétt fyrir kvöldmat á hverjum degi. Ingvar Andri fær líka að hjálpa til.
Alltaf saman fjögur og rosa góðir vinir!
Wiiið mjög vinsælt á heimilinu, Gunnar uppáhaldsfrændi lánaði Björk tækið... enda hefur maður ekki mikinn tíma til að leika sér þegar verið er að læra.


Lestrartími fyrir háttinn. Ingvar Andri heimtar þó alltaf að fá að hlusta á Mikka Ref þangað til hann sofnar, finnst hann æðislegur!

Hvernig væri nú að láta vita af sér :)

Ákvað að skella inn smá info á milli tarna.
Ég kláraði 3ja daga heimapróf í síðustu viku og byrja svo á morgun í project vinnu, sem að verður 3 vikna törn og skil 18.des. Ingvar er í svipuðum málum, er reyndar löngu byrjaður á sínu projecti og hefur frest til 21.des.
En við fáum frekar róleg jól í fyrsta skipti síðan við byrjuðum í náminu, við þurfum "bara" að verja þessi project í jan, engin önnur aukapróf. Mikil tilhlökkun til þess að geta slakað á með krökkunum, kannski maður fari eitthvert út fyrir borgina!
Ingvar er reyndar í smá luxus trip núna, skrapp til suður Frakklanda að prufukeyra bíl. Situr örugglega núna að snæðingi á 5 stjörnu veitingastað og gistir í risa herbergi með baðkari!!! ohhhh hvað ég vildi vera hjá honum! Ég læt mér nægja fótabað :-)

Jólahuggið er byrjað á þessu heimili. Við erum búin með nokkrar gjafir, ætlum að reyna að klára flestar og plata Gunnar Bró með þær heim.
Brenndar möndlur er algjört must þegar maður fer í bæinn, skylda hjá krökkunum að heimsækja básinn sem að selur þær ásamt súkkulaði húðuðum ávöxtum og sykurhúðuðum eplum, og lyktin finnst langar leiðir mmmm... maður á eftir að sakna þess!

Svo er hinn vinsæli jólabasar í skólanum og leikskólanum á laugardaginn. Björk mun spila á risa blokkflautu fyrir basarinn í skólakoncert og svo byrjar fjörið með gómgæti og fallegu hlutum sem að börnin hafa verið að gera. Það fara nokkrir hundrað kallar þann dag!

Jæja elskurnar - þangað til næst :-)
H.

miðvikudagur, október 31, 2007

hlaut að koma að því...

fann eitt grátt hár í morgun!
Svosem lítið hægt að gera í því annað en að reyna að slaka á og njóta lífins :)

/hildur

mánudagur, september 24, 2007

síðsumars myndir

Við náðum að hitta Kristínu og Kára og sjá nýja heimilið á vellinum, og auðvitað var tekið eitt spil með spjallinu.

Síðasta kaffiboðið hjá ömmu Jenný í bili -



Við Björk settum niður nokkur sólblómafræ í sumar, og þau tóku svo á móti okkur þegar við komum heim i ágúst.

aðeins fleiri myndir


smá klór hjá Hansa...
Frændurnir flottu í húsdýragarðinum

morgnarnir í bæjartúninu, mogginn að sjálfsögðu skoðaður


Gott að vera hjá ömmu og afa í bæjartúninu!

Nokkrar myndir frá sumrinu

Ákvað að sýna lit og setja inn nokkrar myndir :)

Huggó afmælisdagur mömmu/ömmu Ásu upp í bústað.

Á leið niður að Meðalfellsvatni að reyna við veiðar með Fríðu og Hansa.

mánudagur, ágúst 20, 2007

Nýtt blogg hjá Björk

Búin að stofna nýtt blogg hjá Björk:
bjarkarblogg.blogspot.com!


Og meilið hennar verður:
bjorkingvarsdottir(at)gmail.com


Björkin

Skólinn byrjaði í morgun hjá Björkinni. Hún vaknaði orðalaust og hress kl 8, klæddi sig og bjó um, læddist svo fram til að fá sér að borða - allt var tilbúið fyrir fyrsta skóladaginn í 5. bekk!
Við Ingvar Andri hjóluðum svo með henni í skólann, sluppum við úrhellið sem vakti mig upp úr sjö.. þvílík demba! Ég næ aldrei að slá grasið út í sumarhúsi því það er alltaf blautt!
Hún var spennt að byrja aftur í skólanum og vaknaði hress stelpan eftir að hafa sofið út í 6 vikur.

Þar sem ég er búin að fá nýja apple fartölvu þá fær Björk til afnota trítluna mína til að æfa sig í að skrifa, lesa og læra inn á heim vefsins. Við förum í það næstu daga að koma henni af stað og virkja meilið, messenger og bloggið. Ég á eftir að stofna blogg fyrir hana, en meilið hennar og messenger er bjorkingvarsdottir@hotmail.com.

Best að drífa sig í bæinn og í leikfimi.. ein og ingvarslaus :(

H.

föstudagur, ágúst 17, 2007

lífið að komast í rútínu

Mikið er nú gott að vera komin heim til sín, í dótið sitt og tala nú ekki um rúmið sitt!
Það voru nú samt blendnar tilfinningar hjá börnunum sem voru alveg til í að vera áfram á Íslandi hjá fjölskyldunni sinni. Björk hefur örugglega verið flutt heim til íslands í huganum því henni fannst hún vera komin eitthvert erlendis þegar við vorum nýkomin heim, var smá ósátt og leið. Hún þarf að takast á við smá breytingar næsta vetur, engin Melkorka og vinkonur í bekknum hennar hafa flutt í annann skóla. En hún finnur örugglega aðra og fleiri vini stelpan, hef ekki miklar áhyggjur af því.

Ingvar Andri var voða kátur að komast í leikskólann sinn fyrsta daginn, en svo kom bakslag annan daginn og ég þurfti að fara frá honum grátandi. Mjög erfitt. En svo hjóluðum við í morgun og ég talaði hann aðeins til og fór frá honum brosandi og glöðum. Hann er svo upprifinn af því að eiga frænda í leikskólanum, sem er nýbyrjaður þar, hann Victor Örn. Hann hefur tekið það að sér að passa upp á hann og aðstoða.

Það er verið að koma sér fyrir aftur, búin að kaupa kaffi og endurnýja innihald ísskápsins. Svo er beðið eftir Ingvari elskunni sem þarf að vinnu viku í viðbót, til að fullkomna fjölskyldulífið hér ved dammen. Það er ekki alveg eins og það á að vera hér án hans...

H.

föstudagur, ágúst 10, 2007

styttist í heimför

4 dagar í heimför og mikil tilhlökkun í að komast aftur heim til sín, í húsið sitt, dótið sitt og rúmið sitt! Þessi rúmi mánuður hér á Íslandi búinn að vera fljótur að líða, enda í nógu að snúast alla daga ásamt því að njóta frísins með því að sofa út alla daga, vera boðin í mat og að vera með fjölskyldu og vinum. Ingvar Andri spurði í morgun hjá hverjum við færum að borða í kvöld, honum finnst þessar heimsóknir mjög skemmtilegar, er alveg að fíla að spjalla við fólkið sitt og kynnast því aftur eftir síðasta sumar.

Síðustu dögunum verður eytt í sumarbústað við Meðalfellsvatn með Fríðu og co., etið á sig gat og drukkin eðalvín :) Á sunnudaginn ætlum við að kíkja til Kristínar og Kára, rifja upp gamlar stundir og eyða með þeim einni kvöldstund áður en haldið er út aftur.

Ég komst inn í námið sem að ég sótti um og er mjög spennt og glöð með það. Þetta er mastersnám (Msc) í Information Architecture og ég kemst loksins upp á háskólasvæðið flotta til Ingvars, getum eytt hádeginu þar saman að borða nestið okkar ;)
Ingvar er enn að bíða eftir svari með sitt nám, fær það væntanlega í næstu viku.

H.